fbpx
Laugardagur 02.ágúst 2025
Sport

Nútíðin og framtíðin

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 1. júní 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir rúmar tvær vikur hefur íslenska landsliðið leik á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi, sviðið er að verða klárt og nú er það bara undir strákunum okkar komið hvernig útkoman verður. Ljóst er að það getur brugðið til beggja vona, allt gæti farið á besta veg en þegar andstæðingarnir eru svona sterkir, getur líka allt farið á versta veg. Íslenski hópurinn er nú allur kominn til landsins og byrjaður að hefja undirbúning sinn, fram undan eru tveir æfingarleikir áður en liðið heldur ti Rússlands þann 9. júní. Nú á laugardag leikur liðið gegn Noregi og á fimmtudag í næstu viku er það leikur við Gana. Þjálfari Noregs, Lars Lagerbäck, sem hóf þessa mögnuðu vegferð sem strákarnir okkar eru á, er Íslendingum afar kær.

Birkir Már Sævarsson hefur átt stöðu hægri bakvarðar í liðinu síðustu ár og ekkert virðist ætla að breyta því, Samúel Kári Friðjónsson var nokkuð óvænt í hópnum. Hann er hugsaður sem hægri bakvörður og því sá maður sem getur mesta pressu sett á Birki og er framtíðar maður í hægri bakverðinum.

„Það er frábært að þessi undirbúningur sé að fara af stað, þetta er það sem maður er búinn að vera að bíða eftir síðan í fyrrahaust, það er gaman að það sé komið að þessu,“ sagði Birkir Már þegar blaðamaður ræddi við hann í vikunni.

Pepsi-deildin hefur ekki áhrif
Birkir er eini leikmaðurinn í hópnum sem hefur spilað á Íslandi í aðdraganda mótsins, hann kom heim úr atvinnumennsku í fyrrahaust og samdi við Val. Birkir var viðbeinsbrotin í vetur en það hefur ekki áhrif á hann. „Ég er í eins góðu standi og ég get verið, ég þurfti mikið á þessum leikjum að halda eftir að hafa verið bara að hlaupa í janúar og febrúar út af meiðslunum. Ég held að það sé sama staða og ef ég hefði verið á hinum Norðurlöndunum. Ég hefði kannski verið búinn að spila örlítið fleiri leiki ef ég hefði verið í Svíþjóð sem dæmi. Það breytir í raun ekki neinu í mínu tilfelli.“

Viðurkennir ofleik
Margir voru hræddir þegar Birkir var sparkaður niður í leik gegn Breiðabliki á dögunum og óttuðust að þarna gæti HM verið í hættu. Hann segist ómeðvitað hafa verið að hlífa sér í sumar. „Ég viðurkenni að þetta var aðeins ofleikið, hann fór í mig en ég held að legghlífin hafi bjargað því. Ég hef reynt að hugsa ekkert um að maður gæti meiðst, það er mögulega aðeins í undirmeðvitundinni, án þess að maður vilji það í raun. Maður vill bara gera sitt besta á vellinum. Það hefur eitthvað aðeins að truflað, sérstaklega út af viðbeinsbrotinu. Ég var aðeins of varkár, líklega án þess að ætla mér það.“

Fagnar samkeppni
Birkir Már fagnar því að fá samkeppni um stöðu sína í liðinu. „Hann setur pressu á mig. Þeir sem eru valdir í þennan hóp geta spilað leikinn. Hann setur pressu á mig, þannig á þetta vera. Þannig að maður spili eins vel og maður getur til að halda sæti sínu. Við erum ekkert að fara á HM til að vera bara með, við ætlum að fara eins langt og hægt er. Byrjum á því og svo skoðum við stöðuna.“

Samúel hefur fengið góðar móttökur
Samúel Kári, sem er 22 ára miðjumaður að upplagi, er hugsaður sem hægri bakvörður í landsliðinu en hann er að stíga sín fyrstu skref í þessum sterka hóp. „Mér hefur verið tekið mjög vel frá fyrsta degi, þetta eru hreint frábærir strákar og með mikla reynslu. Þeir kunna þetta, þetta lið hefur náð rosalega langt. Liðið komst á Evrópumótið og gerði frábæra hluti þar, fyrir mig er algjör lærdómur að geta lært af þeim,“ sagði Samúel við blaðamann í vikunni.

Hugsar ekki um spilatíma
Samúel segist ekki pæla í hvort hann fái eitthvað að spila á HM en hann ætlar að gera sitt besta. „Nú er ég mættur hingað til æfinga og er að hugsa um það. Spilatími – það er ekkert í hausnum á mér,“ sagði Samúel sem kveðst læra mikið af því að spila með Birki. „Ég læri óendanlega mikið af honum, það er það eina sem ég get sagt. Ég hef verið að spila mest sem miðjumaður í Noregi, ég hef þó aðeins verið í bakverðinum en aðallega undir lok leikja.“

Ólst upp í Keflavík
Það er ekki allt knattspyrnuáhugafólk sem þekkir bakgrunn Samúels, hver er maðurinn? „Ég var alltaf í Keflavík frá því að ég gat byrjað að sparka í bolta, ég flutti til Lúxemborgar og bjó þar í eitt ár þarna á milli. Ég var svo bara í Keflavík áður en ég fór 16 ára gamall til Reading á Englandi og var þar í fjögur ár. Ég hef síðan þá verið í Noregi og líkar það afar vel. Ég valdi að fara til Noregs því ég vildi spila og taldi að þarna myndi ég þroskast sem leikmaður, spila í meistaraflokki. Maður veit aldrei hvað gerist í Englandi, það var rétt ákvörðun. Það verður að koma í ljós hvað gerist svo, ég er í Noregi núna og líður bara vel. Ég hef alltaf tileinkað mér að taka bara eitt skref í einu.“

Samú­el Kári Friðjóns­son

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Brynjólfur orðaður við Genoa

Brynjólfur orðaður við Genoa
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Fyrrum stjörnu Manchester United bannað að mæta á æfingar

Fyrrum stjörnu Manchester United bannað að mæta á æfingar
433Sport
Í gær

Shaw kennir sjálfum sér um og segist hafa brugðist Ten Hag og mörgum öðrum

Shaw kennir sjálfum sér um og segist hafa brugðist Ten Hag og mörgum öðrum
433Sport
Í gær

Treysta á að Cucurella hjálpi nýja manninum að aðlagast

Treysta á að Cucurella hjálpi nýja manninum að aðlagast
433Sport
Í gær

Tók stóra skrefið aðeins 33 ára gamall – ,,Já, ég fór aðeins of snemma“

Tók stóra skrefið aðeins 33 ára gamall – ,,Já, ég fór aðeins of snemma“
433Sport
Í gær

Saknar Xhaka meira en Wirtz

Saknar Xhaka meira en Wirtz
433Sport
Í gær

Gerðu grín að grönnunum í færslu á samskiptamiðlum

Gerðu grín að grönnunum í færslu á samskiptamiðlum
433Sport
Í gær

Vill komast burt frá Manchester eftir nokkra mánuði hjá félaginu

Vill komast burt frá Manchester eftir nokkra mánuði hjá félaginu