fbpx
Þriðjudagur 22.júlí 2025
433Sport

Arnór Ingvi kveikti elda í Reykjanesbæ: ,,Ég er gallharður Njarðvíkingur“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 13:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnór Ingvi Traustason er í skemmtilegu viðtali við Víkurfréttir þar sem hann ræðir fótboltaferil sinn og fleira skemmtilegt.

Arnór Ingvi er leikmaður Malmö í Sviþjóð og á fast sæti í íslenska landsliðshópnum í fótbolta.

Arnór Ingvi ólst upp í Njarðvík en fór síðan yfir í Keflavík þar sem hann lék í meistaraflokki. Arnór Ingvi var svo keyptur út og hefur verið í atvinnumennsku síðustu ár.

Athygli vakti á dögunum þegar Arnór mætti á leik Njarðvíkur og Keflavíkur í körfubolta, þar var hann klæddur í treyju Njarðvíkur. Stuðningsmenn Keflavíkur voru ekki allir sáttir með það enda telja þeir sig eiga hlut í honum. Hann fékk nokkur skot á sig fyrir það.

,,Ég er gallharður Njarðvíkingur í körfuboltanum, ég ólst upp í Njarðvík í fótbolta. Ég er jafn í fótboltanum, ég spilaði með Keflavík í fótboltanum,“ sagði Arnór við Víkurfréttir.

,,Ég fór í Keflavík á eldra ári í 3 flokki, við unnum Íslands og bikarmeistaratitil. Við verðum bikarmeistarar í 2 flokki, þó ég hafi lítið vera með þar.“

Viðtalið við Arnór er hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ekki valinn í 29 manna hóp Liverpool og framhaldið nokkuð skýrt

Ekki valinn í 29 manna hóp Liverpool og framhaldið nokkuð skýrt
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir það erfitt að mæta Gyokores – Gætu spilað saman í vetur

Segir það erfitt að mæta Gyokores – Gætu spilað saman í vetur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Beckham gerði stór mistök og eiginkonan ekki lengi að ná í símann – ,,Þetta er ekki fyndið“

Beckham gerði stór mistök og eiginkonan ekki lengi að ná í símann – ,,Þetta er ekki fyndið“
433Sport
Í gær

Tjáir sig um brottför Rashford: ,,Ekki mitt vandamál“

Tjáir sig um brottför Rashford: ,,Ekki mitt vandamál“