fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
433Sport

Logi og Obama styðja sama liðið: ,, Ég þekki það ágætlega hvernig það er að síga upp og niður töfluna í pólitíkinni“

Victor Pálsson
Laugardaginn 5. janúar 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enski boltinn er nokkurs konar sófaþjóðaríþrótt Íslendinga. Fáar ef nokkrar þjóðir hafa meiri áhuga á bresku boltasparki og flestir eiga sitt lið sem þeir styðja fram í rauðan dauðann.

DV tók hús á nokkrum gallhörðum stuðningsmönnum og spurði þá hvernig þeim litist á tímabilið sem nú er í gangi.

Logi Már Einarsson, formaður Samfylgingarinnar, er harður stuðningsmaður West Ham og fylgist reglulega með sínum mönnum.

„Ég styð West Ham, líkt og Barack Obama, og hef gert það frá barnæsku. Þá voru margar frægar kempur í liðinu en mest hélt ég upp á framherjann knáa Clyde Best, frá Bermúda en hann var einn fyrsti þeldökki leikmaður efstu deildar,“ sagði Logi.

,,Þrátt fyrir rysjótt gengi hjá þessu gamla austurbæjarliði hef ég þó verið því trúr og þekki það svo sem ágætlega hvernig það er að síga upp og niður töfluna í pólitíkinni.“

Gengi West Ham hefur verið upp og niður síðustu ár en liðið situr í 10. sæti úrvalsdeildarinnar þessa stundina.

Logi nefnir einnig tvo leikmenn sem hann hélt mikið upp á, þá Paolo Di Canio og Carlos Tevez.

,,Ég gleðst þegar vel gengur og hef dáðst að einstaka afburðaleikmanni sem skolað hefur á fjörur klúbbsins. Ég er alltaf svolítið veikur fyrir litríkum sólóistum á fótboltavellinum og þar eru minnisstæðastir Ítalinn Paolo Di Canio og Argentínumaðurinn Carlos Tevez. Nú er West Ham um miðja deild og það svalar mínum metnaði fullkomlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Barcelona selur leikmann til Benfica

Barcelona selur leikmann til Benfica
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ásakaður um að hafa nauðgað sjö konum en var sýknaður – Rekinn eftir fimm mánuði í nýju starfi

Ásakaður um að hafa nauðgað sjö konum en var sýknaður – Rekinn eftir fimm mánuði í nýju starfi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Myndi frekar taka leikmann Brighton en annan framherja til United – ,,Mun alltaf velja hann“

Myndi frekar taka leikmann Brighton en annan framherja til United – ,,Mun alltaf velja hann“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hefja viðræður við Liverpool á ný

Hefja viðræður við Liverpool á ný
433Sport
Í gær

Forseti Barcelona: ,,Draumur Rashford var að spila fyrir United allan sinn feril“

Forseti Barcelona: ,,Draumur Rashford var að spila fyrir United allan sinn feril“
433Sport
Í gær

Vilja leikmann Liverpool en bíða eftir að aðalmaðurinn verði seldur

Vilja leikmann Liverpool en bíða eftir að aðalmaðurinn verði seldur