fbpx
Fimmtudagur 07.ágúst 2025
433Sport

Sjáðu myndina: Theodór Elmar spilar með KR í fyrsta sinn í 14 ár

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 27. nóvember 2018 20:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Theodór Elmar Bjarnason hefur yfirgefið lið Elazigspor í Tyrklandi en hann staðfesti þetta á dögunum.

Elmar hefur síðustu daga verið að æfa með KR en þetta staðfesti hann í samtali við 433.is nýlega.

Elmar hefur undanfarið ár leikið með Elazigspor en liðið spilar í næst efstu deild í Tyrklandi Miðjumaðurinn kom til félagsins frá AGF á síðasta ári en hann hafði leikið í Danmörku frá árinu 2012 með AGF og Randers.

Félagið hefur verið í vandræðum með að borga leikmönnum laun og er nú óvíst hvað tekur við.

Elmar sagði í samtali við 433.is að framtíð sín gæti ráðist á næstu vikum, hann sé með tilboð frá nokkrum liðum sem hann skoði.

Elmar er KR-ingur í húð og hár, ef hann kemur heim er líklegt að hann fari Í KR.

Hann var mættur á völlinn í kvöld til að spila með KR í Bose-mótinu gegn Stjörnunni í Kórnum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Elmar klæðist KR-treyjunni í heil 14 ár sem gleður marga svarthvíta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hörmulegur atburður: Stakk sér til sunds með kærustunni – Fannst látinn nokkrum klukkustundum síðar

Hörmulegur atburður: Stakk sér til sunds með kærustunni – Fannst látinn nokkrum klukkustundum síðar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjarnan unga sást með annarri konu – Aldursmunurinn minni en þó töluverður

Stjarnan unga sást með annarri konu – Aldursmunurinn minni en þó töluverður
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool gæti snúið aftur

Fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool gæti snúið aftur
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Opna samtalið um Grealish

Opna samtalið um Grealish
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fleiri á förum frá Liverpool

Fleiri á förum frá Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Upphæðin sem Liverpool fær í vasann

Upphæðin sem Liverpool fær í vasann
433Sport
Í gær

Sjáðu þegar Patrick skrifaði söguna uppi á Skaga í gær

Sjáðu þegar Patrick skrifaði söguna uppi á Skaga í gær
433Sport
Í gær

Ná samkomulagi við Liverpool

Ná samkomulagi við Liverpool