Kathryn Mayorga sem fullyrðir að Cristiano Ronaldo hafi nauðgað sér hrottalega, hefur íhugað sjálfsvíg reglulega eftir hið meinta brot.
Mayorga sakar Ronaldo um að hafa nauðgað sér í endaþarminn, á hóteli í Las Vegas, árið 2009. Málið hefur komist á yfirborðið eftir að hún fór í viðtal á dögunum.
Lögfræðingar, Mayorga ræddu við fréttamenn í gær en hún gat ekki komið og tjáð sig vegna þess að hún er þunglynd og á barmi taugaáfalls, níu árum eftir atburðinn.
Mayorga vill að Ronaldo verði dæmdur sekur fyrir nauðgun en hann greiddi hneni 290 þúsund pund árið 2009 fyrir að tjá sig aldrei um kynni þeirra. Hún segist vilja gefa gott fordæmi og að konur eigi að stíga fram sama hversu frægir eða ríkir karlmennirnir eru.
Ronaldo hefur harðneitað fyrir að hafa nauðgað Mayorga og hefur sagt að nauðgun sé alvarlegur glæpur sem hann myndi aldrei fremja. Ronaldo er einn frægasti og besti íþróttamaður í sögunni.
Gögn málsins fóru í dreyfingu árið 2017 þegar Mayorga gaf Der Spiegel blaðinu þær, þar á meðal er samkomulag hennar við Ronaldo árið 2010.
Lögreglan í Las Vegas hóf rannsókn á málinu árið 2010 en Mayorga tilkynnti um nauðgun árið 2009. Þar gaf hún skýrslu en vildi ekki gefa upp fullt nafn sitt, ekki gefa upp hver hefði nauðgað sér og ekki segja hvar brotið hafi átt sér stað.
Mayorga fékk áverkavottorð samkvæmt lögregunni í Las Vegas en hún grét mikið þegar skýrslutaka var tekinn.
Málið verður nú rannsakað á nýjan leik en Ronaldo heldur því fram að Mayorga og fjölmiðlar séu að sækja sér frægð og frama á hans kostnað.