fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
433Sport

Valur skoraði fjögur á tíu mínútum og vann magnaðan sigur – Pedersen markahæstur

Victor Pálsson
Sunnudaginn 16. september 2018 18:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valur 5-1 ÍBV
0-1 Atli Arnarson(20′)
1-1 Patrick Pedersen(55′)
2-1 Haukur Páll Sigurðsson(59′)
3-1 Patrick Pedersen(61′)
4-1 Patrick Pedersen(65′)
5-1 Guðjón Pétur Lýðsson(88′)

Valur styrkti stöðu sína á toppi Pepsi-deildar karla í kvöld er liðið vann 5-1 sigur á ÍBV á Origo-vellinum.

Valsmenn lentu undir í fyrri hálfleik og voru það Eyjamenn sem voru með forystuna eftir fyrstu 45.

Allt annað Valslið mætti til leiks í síðari hálfleik og skoraði liðið fjögur mörk á stuttum kafla.

Patrick Pedersen jafnaði metin fyrir Val á 55. mínútu leiksins áður en Haukur Páll Sigurðsson bætti við öðru fjórum mínútum síðar.

Pedersen var svo aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar og bætti svo strax við sínu þriðja marki eftir það og kom Val í 4-1. Hann er nú markahæsti leikmaður deildarinnar með 16 mörk.

Guðjón Pétur Lýðsson skoraði svo fimmta mark Vals undir lokin og vann liðið að lokum öruggan 5-1 sigur.

Valur er nú á toppnum með 43 stig, fjórum stigum á undan Stjörnunni. ÍBV situr í áttunda sæti með 23 stig og getur enn fallið í Inkasso-deildina. Liðið er fjórum stigum frá fallsæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þýsku risarnir reyna að fá leikmann Brighton á láni

Þýsku risarnir reyna að fá leikmann Brighton á láni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Efnilegur miðjumaður United á leið á láni í næst efstu deild

Efnilegur miðjumaður United á leið á láni í næst efstu deild
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tottenham að ræsa vélina og ætla sér að kaupa Eze

Tottenham að ræsa vélina og ætla sér að kaupa Eze
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mun City reyna að stela Simons af Chelsea?

Mun City reyna að stela Simons af Chelsea?
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lögreglan í Svíþjóð rannsakar hvort skotárás og fjárkúgun tengist kaupum Arsenal

Lögreglan í Svíþjóð rannsakar hvort skotárás og fjárkúgun tengist kaupum Arsenal
433Sport
Í gær

City hefur samband við Donnarumma

City hefur samband við Donnarumma
433Sport
Í gær

Stórfurðuleg ástæða þess að Rojo má ekki bera nafnið á bakinu

Stórfurðuleg ástæða þess að Rojo má ekki bera nafnið á bakinu
433Sport
Í gær

Grealish hringdi í Rooney fyrir skiptin – ,,Vona að hann sé ánægður“

Grealish hringdi í Rooney fyrir skiptin – ,,Vona að hann sé ánægður“
433Sport
Í gær

Hurzeler óttast ekki að missa Baleba

Hurzeler óttast ekki að missa Baleba