Setja 30 milljarða evra í uppbyggingu eftir flóðin í Þýskalandi
PressanAð minnsta kosti 180 manns létust í flóðum í Þýskalandi í júlí. Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að setja 30 milljarða evra í enduruppbyggingarstarf á flóðasvæðunum. Angela Merkel, kanslari, skýrði frá þessu í gær eftir fund með leiðtogum sambandsríkjanna. Útgjöldin skiptast á milli sambandsstjórnarinnar og sambandsríkjanna 16. Merkel sagði þetta vera merki um samstöðu þjóðarinnar. Nordhrein-Westfalen og Rheinland-Pfalz fóru verst Lesa meira
Ókeypis kórónuveiruskimanir heyra sögunni til í Þýskalandi í október
PressanHeldur hefur hægt á gangi bólusetninga gegn kórónuveirunni í Þýskalandi og því þarf að breyta. Með nýjum aðgerðum á að fá fólk til að láta bólusetja sig að sögn Angela Merkel, kanslara. Frá og með 11. október verður ekki lengur ókeypis að fara í skimun vegna kórónuveirunnar. Þess utan verða gerðar auknar kröfur til óbólusettra Lesa meira
Grunuð um að hafa sprautað 8.600 manns með saltlausn í stað bóluefnis – Er mótfallin bóluefnum
PressanÞýsk yfirvöld hvöttu í gær 8.600 íbúa í Friesland, í norðurhluta landsins, til að fara aftur í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Þetta var gert í kjölfar þess að rannsókn lögreglunnar leiddi í ljós að hjúkrunarfræðingur, sem starfaði við bólusetningar, hafi hugsanlega sprautað fólkið með saltlausn í stað bóluefna. Þetta mun hafa gerst snemma í vor. Saltlausn er Lesa meira
Sjötti hver Þjóðverji er við fátæktarmörk
PressanÞýskaland er ríkasta landið í ESB en það þýðir ekki að allir landsmenn hafi það gott. Um sjötti hver Þjóðverji, eða 14 milljónir, lifir í fátækt eða við fátæktarmörk. Landið er þekkt sem ein best smurða útflutningsmaskína heims og fjárhagsleg umsvif landsins og þýskra fyrirtækja eru mikil. En velferðarkerfið er ekki eins gott og á Lesa meira
1.300 manns saknað á flóðasvæðunum í Þýskalandi
PressanEkki er vitað um afdrif um 1.300 manns á flóðasvæðunum í Bad Neuenahr-Ahrweiler í Þýskalandi. Staðfest hefur verið að 59 hafi látist í óveðrinu í Þýskalandi og 9 í Belgíu. Mikil úrkoma hefur einnig verið í Lúxemborg og Hollandi en ekki hafa borist fregnir af manntjóni þar. Lögreglan varar fólk við að fara inn á flóðasvæðin í vesturhluta Þýskalands. Bild Lesa meira
Uppfært – 60 saknað í Þýskalandi eftir að sex hús hrundu – Gríðarleg úrkoma – 4 látnir
PressanÞrjátíu manns er saknað eftir að nokkur hús hrundu í Schuld í vesturhluta Þýskalands í kjölfar gríðarlegrar úrkomu. Mikil flóð hafa fylgt úrkomunni og sópuðu þau húsunum á brott og hrundu þau. Sky News segir að sex hús hafi hrunið og 25 til viðbótar séu í hættu á að hrynja í Schuld. Mikil rigning hefur verið í vesturhluta Lesa meira
Þjóðverjar banna fána Hamas
PressanÞýska ríkisstjórnin hyggst banna alla notkun fána Hamas-samtakanna en þau eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök af Evrópusambandinu. Hugmyndin kom upp í kjölfar nokkurra árása á gyðinga í maí. Die Welt skýrir frá þessu. Fram kemur að hugmyndin hafi kviknað eftir óeirðir í Berlín, Hamborg og fleiri borgum í maí sem beindust gegn gyðingum. Þá var ráðist á bænahús gyðinga, fáni Ísraels var Lesa meira
Þjóðverjar loka skjalageymslum Stasi
PressanÁ fimmtudaginn lokuðu þýsk yfirvöld skjalasafni austurþýsku leyniþjónustunnar Stasi en það hafði verið opið almenningi í 30 ár. Þjóðverjar gátu fengið aðgang að gögnum leyniþjónustunnar um þá sjálfa og það eftirlit sem þeir sættu á tímum Austur-Þýskalands. Í skjalasafninu eru margar milljónir skjala, ljósmynda og hljóðupptaka. Margt sem þar er að finna hefur vakið mikla athygli og Lesa meira
49 þýskir lögreglumenn afhjúpaðir – Virkir á spjallrásum öfgahægrimanna
Pressan49 þýskir lögreglumenn hafa verið virkir á spjallrásum öfgahægrimanna í Frankfurt. Lögreglumennirnir, sem koma úr sérsveit lögreglunnar, rannsóknarlögreglunni og frá saksóknaraembættinu, skiptust meðal annars á merkjum nýnasista á spjallrásunum. Nýlega komst upp um þetta og leiddi það til þess að ein sérsveit lögreglunnar var lögð niður. Peter Beuth, innanríkisráðherra í Hessen, sagði að auk lögreglumannanna hafi sjö til Lesa meira
Þýskur hermaður blekkti alla upp úr skónum – Þóttist vera flóttamaður og hugði á hryðjuverk
PressanUngur þýskur hermaður, nefndur Franco A. í þýskum fjölmiðlum, er nú fyrir rétti í Frankfurt ákærður fyrir að hafa ætlað að ráðast á þýska stjórnmálamenn dulbúinn sem sýrlenskur flóttamaður. Markmiðið með þessu var að vekja upp reiði almennings í garð flóttamanna. Málið hefur skokið þýskt samfélag enda er það að vissu leyti með miklum ólíkindum. Franco stal skotfærum frá hernum og ætlaði að meðal annars að Lesa meira