Í rússneska sjónvarpinu
EyjanJón Gnarr var í viðtali í sjónvarpi á veitingastað sem við fórum á við Moskvufljót í kvöld eins og sjá má á myndinni sem ég smellti af. Það sást í Fríkirkjuna, Tjörnina og endur. Svo birtist Jón Bjarnason á skjánum, en þá var eins og væri skyndilega klippt.
„Samningar skulu standa“
EyjanLesandi síðunnar sendi þessa grein: — — — „Talsmaður lánþega: Málið er sáraeinfalt. Samningar skulu standa!“ http://eyjan.is/blog/2010/06/19/talsmadur-samtaka-lanthega-malid-er-saraeinfalt-samningar-skulu-standa/ Bæði lánveitandi og lántaki voru sammála um að af láninu skyldu greiðast vextir og verðtrygging (í formi gengistryggingar). Báðir aðilar voru í góðri trú um að skilmálinn var í samræmi við lög. Það að Hæstiréttur hefur nú sagt Lesa meira
Icesave fer ekkert
EyjanÞað er mikið talað um tengsl ESB umsóknar og Icesave. Staðreyndin er samt sú að Icesave þarf að ljúka hvort sem horft er til ESB eða ekki. Icesave fer ekkert. Líklega mun aftur verða reynt að finna lausn á málinu í síðla sumars eða í haust. Menn hafa velt því fyrir sér hvort auðveldara verði Lesa meira
Vændiskaup og gapastokkar
EyjanÍ gildi eru ný lög á Íslandi um að það sé refsivert að kaupa vændi. Þetta er umdeilt mál, víða um heim er þetta ekki talið afbrot. Ég man að fyrir nokkrum árum var ég með tvo leiðtoga sósíalista á Norðurlöndum í þætti hjá mér. Annars vegar Kristinu Halvorsen, leiðtoga Sosialistisk venstreparti í Noregi, og Lesa meira
Rógur?
EyjanÁkveðinn hópur manna talar um róg gegn Davíð Oddssyni. Nú er það svo að hann er oftast nefndur af öllum mönnum í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Alls 1.147 sinnum. Og það verður seint sagt að hans sé að góðu getið. Er þá rannsóknarnefndin líka að breiða út róg um forsætisráðherrann og seðlabankastjórann fyrrverandi?
Meira fúsk
EyjanDómur Hæstaréttar um ólögmæti gengislána sýnir glöggt hvað Íslendingar hafa mikið umburðarlyndi gagnvart fúski. Það var alltaf grunur um það í kerfinu að þetta kynni að vera ólöglegt. Það er óhugsandi annað en að lögfræðideildir bankanna hafi skoðað lögin sem þarna eiga við. Og hvað þá með Fjármálaeftirlitið? En menn kusu einfaldlega að horfa framhjá Lesa meira
Dásamlegt plokk
EyjanÞað er ekki nóg með að skattar hækki og alls konar gjöld. Peningaplokkið magnast líka um helming. Um daginn barst mér tilkynning frá sýslumanninum á Bolungarvík – hann fékk þessu greinilega úthlutað – um „vanrækslugjald“. Þetta er samkvæmt reglugerð frá því í ágúst 2009 um skoðun ökutækja. Segir að ef maður komi ekki með bíl Lesa meira
17. júní
EyjanGleðilegan þjóðhátíðardag. Við erum stödd í Moskvu. Tókum með tvo íslenska fána og ætlum að halda skrúðgöngu á Rauða torginu í dag.
Fullir af reiði en án hugmynda
EyjanThe Economist fjallar um bandaríska hægrið í leiðara og segir eins og er: að það hafi engar hugmyndir en sé að farast úr reiði. Blaðið lýsir ástandinu á hægri vængnum í Bandaríkjunum eins og geðveikrahæli, þar sem hófsemdar- og skynsemisfólk er hrakið burt. Myndin sem fylgir með greininni er af brjálaða teboðinu úr Lísu í Lesa meira
Norður-Kórea og HM
EyjanÉg ók í leigubíl framhjá bar djúpt inni í gömlu Austur-Berlín í gær og heyrði gríðarleg fagnaðarlæti. Þetta var um það leyti að Norður-Kóreumenn skoruðu mark sitt gegn Brasilíu. Voru þetta Norður-Kóreumenn í Berlín að fagna? Einhverjir sem hafa gleymst, orðið eftir síðan áður en Múrinn féll? Annars er það leið til að vera frumlegur Lesa meira