María Rut Kristinsdóttir skrifar: Þegar kerfið bregst þolendum
EyjanFastir pennar„Ofbeldi þrífst í þögninni“ „Skömmin er gerandans“ „Höfum hátt og segjum frá“ „Skilum skömminni.“ Allt eru þetta setningar sem ómuðu hér á landi fyrir nokkrum árum með það að markmiði að rjúfa þögnina um ofbeldi, opna umræðuna og ráðast að rótum vandans. Tilgangurinn var skýr – að finna leiðir til að koma í veg fyrir Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Fíllinn í herberginu
EyjanFastir pennarÞegar kemur að íslenskri efnahagsstjórn er að mínu mati risastór fíll í herberginu. Hann er stór og klaufalegur. Plássfrekur og ófyrirsjáanlegur. Hann heitir íslenska krónan. Það hefur einhverra hluta vegna orðið að einhvers konar þjóðarstolti að viðhalda eigin gjaldmiðli. Hann er vissulega fagur fimmhundruðkallinn með Jóni Sigurðssyni en hversu vel tekst okkur að halda honum Lesa meira
María Rut: Óásættanlegt að fólk þurfi að berjast árum saman fyrir rannsókn
FréttirMaría Rut Kristinsdóttir, þingkona Viðreisnar, segist ætla að beita sér fyrir því að í frumvarpi um ný heildarlög fyrir almannavarnir verði ákvæði um rannsóknarnefnd sem virkist sjálfkrafa ef mannskaði hlýst af náttúruhamförum eða eignatjón verður stórfellt. María Rut gerir þetta að umtalsefni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Tilefni greinarinnar er skýrsla rannsóknarnefndar vegna Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Ljós í myrkri
EyjanFastir pennarÞað er eitthvað töfrandi við aðventuna. Þrátt fyrir eril, innkaupa- og gátlista, endalaus þrif og ákveðið stress, þá fylgir henni á einhvern undarlegan og þversagnarkenndan hátt líka ákveðin innri ró. Í sítengdri veröld sem krefst þess að við svörum skilaboðum samstundis og stöðugrar kröfu um afköst, er kærkomið að leyfa sér smá kæruleysi. Það má Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir: Á óttaslóðum
EyjanFastir pennarÉg finn mig æ oftar staldra við og setja hljóða í samfélagsumræðunni. Hvort sem er í samhengi alþjóðamála eða hér heima. Mér finnst við vera á rangri braut. Við gleymum að horfast í augu, ræða saman, rökræða og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Og verst af öllu, þá finnst mér við vera að falla fyrir eldgömlum Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Hvernig væri lífið án EES?
EyjanFastir pennarSíðasta vika markaði ákveðin vatnaskil í orðræðu um EES-samninginn á Íslandi þegar leiðtogar stjórnarandstöðunnar öttu kappi í keppnisgreininni dramatískar yfirlýsingar án atrennu. „Evrópusambandið er hnignunarsamband,“ sagði einn. „Setjum allar EES innleiðingar á ís,“ sagði annar. Botninn tók svo úr þegar formaður Sjálfstæðisflokksins, sem eitt sinn var yfirvegaður og stjórntækur stjórnmálaflokkur, líkti Evrópusambandinu við glæpamann. Á Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík
EyjanFastir pennarFyrir kosningar mæta frambjóðendur gjarnan til leiks með sleikipinna í öllum regnbogans litum. Skyndilega er hægt að boða útgjöld í flesta málaflokka og ókeypis þjónustu hér og þar. Sannkölluð óðaverðbólga á gylliboðum. Svona hefur þetta líklega alltaf verið og einskorðast aldeilis ekki við íslensk stjórnmál. Skuggahliðin er sú að þegar í ljós kemur að það Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg
EyjanFastir pennar„Okkur er orða vant, Íslendingum öllum, þegar við í dag enn horfumst í augu við afleiðingar miskunnarlausra náttúruhamfara. En um leið finnum við hvað við erum nákomin hvert öðru. Hve þétt við stöndum saman þegar raunir ber að höndum. Við erum nú hverja stund með hugann hjá þeim sem hafa orðið fyrir þungum raunum. Sorg Lesa meira
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Hið íslenska hundaflaut
EyjanFastir pennarÞað sem hefur einkennt pólitískan spuna síðustu ára eru hundaflautur. Þær hljóma ekki hátt, en eru hannaðar til að kalla fram ákveðin viðbrögð hjá ákveðnum hópum. Þannig eru hlutir sagðir undir rós til þess að espa upp tiltekinn hóp samfélagsins. Reagan talaði um bótadrottninguna (e. Welfare Queen). Breskir einangrunarsinnar vildu ná völdunum aftur (e. Take Back Control) Lesa meira
María hlustaði á sláandi frásögn fulltrúa Neyðarlínunnar
FréttirMaría Rut Kristinsdóttir, þingkona Viðreisnar, heimsótti Akranes í síðustu viku en eins og kunnugt er var kjördæmavika þar sem þingmönnum gefst tækifæri til að ferðast um kjördæmi sitt og eiga samtöl við íbúa um það sem skiptir þá máli. María segir frá því í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að í heimsókn hennar á Lesa meira
