Mynd

Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri

Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hefði sýnt almennum borgara óviðeigandi framkomu með ósæmilegu látbragði í umferðinni, á meðan lögreglubíllinn sem lögregluneminn sat í var í forgangsakstri.

Mynd

Ógnaði starfsfólki matvöruverslunar með hníf

Meðal verkefna dagsins hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var einstaklingur sem var með hníf og sýndi af sér ógnandi hegðun á ölhúsi og annar aðili sem var með hníf í matvöruverslun og ógnaði starfsfólki.

Fyrrnefnda verkefnið kom til kasta lögreglustöðvar 1 sem sér um löggæslu í miðborg, vesturbæ og austurbæ Reykjavíkur auk Seltjarnarness.

Mynd

Ólöglegir innflytjendur handteknir í Hafnarfirði

Tveir menn voru handteknir á tveimur mismunandi stöðum í Hafnarfirði í dag fyrir ólöglega dvöl í landinu. Annar þeirra var þar að auki við vinnu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. 

Annar mannanna var handtekinn í miðbæ Hafnarfjarðar en hinn í hverfi 221 sem nær yfir Ásland, Setberg og Velli.

Mynd

Sonur þingmanns í haldi vegna harmleiksins í Salahverfinu

Maðurinn sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí síðastliðnum er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins. Maðurinn sem lést er Hilmar Oddur Gunnarsson, vörubifreiðastjóri og sjómaður frá Suðureyri, eiginmaður Lilju Rafneyjar.

Mynd

Manndráp í Vallargerði: Skvettu sýru á hinn látna

Rannsókn á manndrápi sem framið var í húsi við Vallargerði í Kópavogi um helgina stendur yfir. Fjöldi þeirra sem handteknir hafa verið vegna málsins er nú á annan tug og talið er að sýru hafi verið skvett á manninn sem myrtur var auk þess sem hann var stunginn.