Mynd
Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
Hlutverk borgarfulltrúa er ekki að finna sér einatt ný og skemmtileg verkefni eins og að stækka selalaugina og leiðbeina með afmælisveislur. Borgin hefur ákveðnar grunnskyldur og á að einbeita sér að því að uppfylla þær með sóma áður en farið er að huga að gæluverkefnum. Sveitarstjórnarmál snúast fyrst og fremst um forgangsröðun.