Mynd

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór fær auðvitað bara að ræða við þingmenn en getur ekki kallað ráðherra og formenn flokka á sinn fund

Guðlaugur Þór Þórðarson, sem nú er óbreyttur þingmaður, er fyrst og fremst fyrrverandi ráðherra en ekki stjórnmálamaður sem er í stöðu til að gera tilkall til þess að ráðherrar og formenn flokka mæti honum í einhvers konar kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Guðlaugur Þór hefur aldrei verið formaður flokks – langaði reyndar mikið til þess.