David Grusch stígur fram á ný – Segir bandaríska hermenn hafa fallið í átökum við ómennskar verur
Bandaríski UAP-uppljóstrarinn David Grusch steig fram á ný í vikunni í löngu viðtali hjá Joe Rogan. Þar setti hann fram einhverjar ótrúlegustu fullyrðingar sínar til þessa: um risavaxnar stöðvar undir hafinu, endurheimt óþekktra farartækja, ómennskar verur og jafnvel vopnuð átök þar sem bandarískir hermenn eru sagðir hafa fallið.