Mynd

Segir Brynjar saka sig að ósekju um að vega að tjáningarfrelsinu - „Krafan um að menn segi satt og svari fyrir orð sín“

Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor var afar virkur í að hvetja kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina til að segja já. Brynjar Níelsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins var hins vegar harður nei-sinni. Brynjar skýtur föstum skotum á Gauta í nýjum Facebook-pistli og segir hann gott dæmi um hvernig vegið sé að tjáningarfrelsinu innan ESB.

Mynd

Áhugalítill um ESB en vildi að Viðreisn hefði fengið menntamálaráðuneytið

Líklega er Jón Gnarr sá þingmaður Viðreisnar sem einna minnstan áhuga hefur haft fyrir Evrópusambandinu og því að Ísland héldi afram aðildarviðræðum við það en nú er ljóst að svo verður ekki á líftíma þessarar ríkisstjórnar. Jón var þó áður búinn að lýsa því áður að hann myndi kjósa já og vildi sjá hvernig aðildarsamningur Íslands myndi líta út.

Mynd

Segir Sólveigu Önnu hafa verið fullfrjálst að berjast fyrir nei en gerir alvarlegar athugasemdir við félagsskapinn

Þröstur Ólafsson hagfræðingur og þjóðfélagsrýnir var stuðningsmaður þess að já yrði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fór í gær en nú er ljóst að svo varð ekki. Hann svarar í nýjum Facebook-pistli fyrir gagnrýni sem hann hlaut fyrir ádeilu sína á Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar og þátttöku hennar í starfi nei-hreyfingarinnar.

Mynd

Almenningur sagður ekki nógu greindur fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur - Auðvaldið hafni samfélagi fyrir alla - Gagnkvæmar ásakanir um fjáraustur og hvatt til afsagna valkyrjanna

Áfram er haldið að ræða úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við ESB af krafti á samfélagsmiðlum. Landsþekktur fjölmiðlamaður segist almennt ekki telja þjóðaratkvæðagreiðslur til góðs þar sem hinn almenni borgari sé yfirleitt ekki nógu greindur til að skilja flókn viðfangsefni.