fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

eldgos

Gosið orðið stöðugra en samt hætta á nýjum gosopum – Meðal annars í Grindavíkurbæ

Gosið orðið stöðugra en samt hætta á nýjum gosopum – Meðal annars í Grindavíkurbæ

Fréttir
19.12.2023

Hraunflæði í Sundhnúkagígaröðinni er núna fjórðungur af því sem það var í gærkvöldi þegar gosið hófst. Engu að síður er flæðið mun meira en var í upphafi hinna þriggja eldgosanna á Reykjanesskaga. Hraunflæðið er nú um 100 rúmmetrar á sekúndu en var um 400 þegar mest lét í gærkvöldi. Þá hefur gosopum fækkað úr fimm Lesa meira

Segir form hraunsins geta skipt máli

Segir form hraunsins geta skipt máli

Fréttir
19.12.2023

Prófessor í eldfjallafræði við Uppsala-háskóla í Svíþjóð segir að það geti skipti máli hvort hraunið úr gosinu við Sundhnúksgíga verður mjög fljótandi eða í fastara formi. Þetta geti skipt máli varðandi það hversu vel varnargarðarnir við Svartsengi halda verði þeir fyrir hraunstreymi. Þetta kemur fram í umfjöllun Aftonbladet. Þess misskilnings virðist þó gæta í fréttinni Lesa meira

Bláa lónið lokað til 28. desember

Bláa lónið lokað til 28. desember

Fréttir
19.12.2023

Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa tekið þá ákvörðun að hafa lónið lokað til 28. desember næstkomandi að minnsta kosti. Þetta er gert vegna eldsumbrotanna við Sundhnúkagíga sem hófust í gærkvöldi. Tilkynnt er um lokunina á heimasíðu Bláa lónsins en þar segir að ákvörðunin verði endurskoðuð 28. desember. Þá verði haft samband við þá gesti sem eiga Lesa meira

Gosið að dragast saman – Sprungur geta opnast fyrirvaralaust

Gosið að dragast saman – Sprungur geta opnast fyrirvaralaust

Fréttir
19.12.2023

Kraftur eldgossins sem hófst við Sundhnúksgíga í gærkvöldi heldur áfram að minnka. Þetta kemur í nýrri tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. Í tilkynningunni segir að hraunflæði sé gróflega áætlað um fjórðungur af því sem það var í byrjun og sé þriðjungur upphaflegu sprungunnar virkur. Kvikustrókar séu einnig lægri en í byrjun goss, um það bil Lesa meira

Hlýjum kveðjum rignir yfir Íslendinga – „Ég vona innilega að allt fari vel“

Hlýjum kveðjum rignir yfir Íslendinga – „Ég vona innilega að allt fari vel“

Fréttir
19.12.2023

Allir helstu fjölmiðlar heims hafa fjallað um eldsumbrotin sem hófust á Reykjanesi í gærkvöldi og virðist heimsbyggðin fylgjast grannt með gangi mála. Ljóst er að margir hugsa hlýlega til Íslendinga – og kannski helst Grindvíkinga – á þessum tímum en það má meðal annars lesa í athugasemdakerfum erlendra fréttamiðla. Á vef Daily Mail er til dæmis að finna Lesa meira

Einn stærsti fjölmiðill heims furðar sig á spennufíklum sem fóru að gosstöðvunum í nótt

Einn stærsti fjölmiðill heims furðar sig á spennufíklum sem fóru að gosstöðvunum í nótt

Fréttir
19.12.2023

Breski vefmiðillinn Daily Mail fjallar um eldgosið sem hófst í Sundhnúkagígum í gærkvöldi. Það kemur kannski ekki á óvart enda er eldgosið áberandi á síðum erlendra netmiðla þennan morguninn. Á forsíðu Dail Mail blasir þetta við lesendum í efstu frétt: Tilmæli virt að vettugi Í fréttinni er sagt frá spennufíklum sem fóru býsna nálægt gosstöðvunum Lesa meira

Einar: „Það er engin spurning að fólk mun finna fyrir þessu“

Einar: „Það er engin spurning að fólk mun finna fyrir þessu“

Fréttir
19.12.2023

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Blika.is, segir það miklu máli skipta hver vindáttin er þegar kemur að mengun frá eldgosinu sem hófst við Sundhnúkagígaröðina í gærkvöldi. Viðbúið er að töluverð mengun fylgi eldgosinu enda hraunrennsli mun meira en var til dæmis í síðasta gosi við Litla-Hrút. Einar ræddi þetta í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. „Eins Lesa meira

Bryndís minnir á eitt mikilvægt atriði nú þegar eldgos er hafið

Bryndís minnir á eitt mikilvægt atriði nú þegar eldgos er hafið

Fréttir
19.12.2023

Bryndís Gunnlaugsdóttir, íbúi í Grindavík og fyrrverandi forseti bæjarstjórar í bænum, minnir á mikilvægt atriði varðandi Grindvíkinga nú þegar eldgos er hafið enn eina ferðina á Reykjanesi. Bryndís skrifaði færslu á Facebook í nótt sem vakið hefur talsverða athygli og veitt hún DV góðfúslegt leyfi til að deila henni með lesendum. „Eldgos eru spennandi, kraftmikil náttúruöfl og Lesa meira

Magnús Tumi: Hraunið gæti nálgast Grindavíkurveg eftir nokkra daga – Reykjanesbraut ekki í hættu

Magnús Tumi: Hraunið gæti nálgast Grindavíkurveg eftir nokkra daga – Reykjanesbraut ekki í hættu

Fréttir
19.12.2023

Magnús Tumi Guðmundsson, jarðfræðingur og prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, flaug yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk um fimm leytið í morgun. Hann ræddi við fréttastofu RÚV um sex leytið og sagði að töluvert hefði dregið úr gosinu frá því sem mest var í kringum miðnætti. „Það kemur nú ekki á óvart. En það er ennþá töluvert gos Lesa meira

Sjáðu ótrúleg myndbönd af eldgosinu í nótt – Mikill munur á örfáum klukkutímum

Sjáðu ótrúleg myndbönd af eldgosinu í nótt – Mikill munur á örfáum klukkutímum

Fréttir
19.12.2023

Landhelgisgæslan flaug yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og í nótt og blasti ótrúlegt sjónarspil við vísindamönnum og þeim sem voru um borð. Hér að neðan gefur að líta myndbönd frá Landhelgisgæslunni og er athyglisvert að bera saman kraftinn í gosinu þegar það hófst og svo undir morgun þegar talsvert hafði dregið úr honum. Þetta Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af