fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Sport

EM í handbolta hafið – Íslendingar stýra för í fyrsta leik

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 17:07

Anton Gylfi Pálsson, Jóhann Ingi Gunnarsson og Jónas Elíasson eru klárir í slaginn á EM.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blásið hefur verið til leiks í fyrsta leik Evrópumótsins í handbolta  í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Um er að ræða leik Spánar og Serbíu í A-riðli mótsins en hann hófst í Herning í Danmörku klukkan 17 að íslenskum tíma og er leikurinn í beinni útsendingu á RÚV.

Íslenska dómaraparið Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson fá þann heiður að dæma opnunarleikinn en þeir hafa fengið sífellt fleiri verkefni utan landssteinanna á undanförnum árum og fer vegur þeirra vaxandi við hverja raun.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru Anton og Jónas brattir skömmu fyrir leik en þeir njóta styrkrar leiðsagnar sálfræðingsins kunna Jóhanns Inga Gunnarssonar sem heldur utan um andlega styrktarþjálfun dómarapara mótsins eins og mörg undanfarin stórmót.

Jóhann Ingi átti glæstan feril sem handboltaþjálfari en hann var meðal annars landsliðsþjálfari Íslands auk þess að stýra þýsku stórliðunum Kiel og Essen. Gerði Jóhann Ingi síðarnefnda liðið að Þýskalandsmeisturum árið 1987.

Eftir að þjálfaraferlinum lauk hefur Jóhann Ingi einbeitt sér að rekstri sálfræðistofu sinnar, þar sem hann hefur aðstoðað fjölmarga afreksmenn í íþróttum, auk þess sem hann er afar vinsæll fyrirlesari þar sem hann blandar saman sálfræðiþekkingu sinni og reynslu úr heimi afreksíþrótta.

Ljóst er því að Anton og Jónas njóta góðrar leiðsagnar við að takast á við þau krefjandi verkefni sem framundan.

Íslenska handboltalandsliðið hefur síðan leik á mótinu á morgun en Ítalía verður fyrsti andstæðingur liðsins og hefst hann klukkan 17.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Helga Jean var ekki skemmt – „Eitt og sér mjög magnað að vera með svona mikið egó“

Helga Jean var ekki skemmt – „Eitt og sér mjög magnað að vera með svona mikið egó“
433Sport
Í gær

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar
433Sport
Í gær

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres
433Sport
Í gær

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val
433Sport
Í gær

Vonast til að halda góðu gengi áfram svo Frank komist loksins í klippingu

Vonast til að halda góðu gengi áfram svo Frank komist loksins í klippingu
433Sport
Í gær

Fór verulega í taugarnar á Hjálmari – „Hversu vitlaus geturðu verið?“

Fór verulega í taugarnar á Hjálmari – „Hversu vitlaus geturðu verið?“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir tímabilið skipta minna máli vegna andláts Jota

Segir tímabilið skipta minna máli vegna andláts Jota
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rosalegar launakröfur leikmanns Liverpool

Rosalegar launakröfur leikmanns Liverpool