Manchester United tapaði gegn Everton, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eftir tapið er von Man Utd um að ná sæti í Meistaradeild Evrópu orðin veikari.
Cristiano Ronaldo var ansi pirraður eftir tapið og samkvæmt nokkrum erlendum miðlum braut hann síma áhorfanda er hann gekk inn í leikmannagöngin eftur leik.
Myndband af þessu hefur birst víða á Twitter í dag. Á því er þó nokkuð erfitt að sjá hvað nákvæmlega fór fram.
Samkvæmt Sky Sports skoðar Man Utd nú atvikið.
#MUFC are looking into an incident involving Cristiano Ronaldo and what eyewitnesses say was a mobile phone hitting the ground after his side's defeat at Goodison Park.
[🎥] @EvertonHub pic.twitter.com/sZs1jnnUja
— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 9, 2022