Chelsea hefur hafnað beiðni Crystal Palace um að fá að leika miðjumanninum Conor Gallagher er liðin mætast í undanúrslitum enska bikarsins um næstu helgi.
Gallaher er í láni hjá Palace frá Chelsea og má samkvæmt samningi ekki spila. Chelsea hefði getað gefið undanþágu en það ætlar félagið ekki að gera.
Hinn 22 ára gamli Gallagher hefur heillað mikið undir stjórn Patrick Vieira hjá Palace á leiktíðinni. Hans verður án efa saknað í undanúrslitaleiknum.
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, er sagðir mikill aðdáandi Gallagher. Hann íhugar sterklega að gefa honum stórt hlutverk hjá félaginu frá og með næstu leiktíð.