Hart, sem er 33 ára gamall, spilaði með Burnley á síðasta tímabili en hann var aðalmarkvörður Manchester City lengst af á ferlinum en síðan hefur hann verið á láni hjá mörgum félögum. Þá var Hart einnig landsliðsmarkvörður enska landsliðsins um tíma.
Eins og áður segir er Hart samningslaus núna og leitar hann því að nýjum klúbbi til að spila með. Hart deildi myndum á Instagram-síðu sinni þar sem sjá má að hann er kominn í afar gott form. Mögulega er hann að sýna að hann er ennþá í fullu fjöri til þess að heilla félög í von um að fá samning.
Myndirnar má sjá hér fyrir neðan: