fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Sport

Pepsi-deild karla byrjar með látum

Nýliðar KA komu á óvart – Íslandsmeistarar FH sýndu frábæra takta

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 6. maí 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pepsi-deild karla fór af stað um síðustu helgi en deildin gæti orðið afar spennandi í ár ef mið er tekið af fyrstu umferðinni. Erfitt er þó að fella stóra dóma eftir aðeins eina umferð; KA snéri aftur í efstu deild í fyrsta sinn frá árinu 2004 og lék sér að liði Breiðabliks. FH og Valur byrjuðu bæði á góðum sigri en KR-ingar töpuðu á heimavelli gegn Víkingi.

KA-menn sterkir

Eins og fyrr segir vann KA öruggan 3-1 sigur á Breiðabliki í 1. umferð en liðið kemur til leiks með marga frábæra leikmenn og gæti strítt bestu liðum deildarinnar í sumar. Á mánudag heimsækir liðið Íslandsmeistara FH í Kaplakrika og eftir þann leik verður auðveldara að dæma um styrkleika liðsins.

„Það hefur nú yfirleitt verið þannig að það er mjög erfitt að spila á móti nýliðum í 1. umferð Pepsi-deildarinnar. KA er með mjög öfluga leikmenn sem hafa mikla reynslu og ég held að þeir geti komið á óvart í sumar. Auðvitað var það frekar óvænt að sigur þeirra á sterku liði Blika væri svona sannfærandi en KA geta orðið mjög öflugir í sumar. Þeir eru með Guðmann Þórisson, sem er auðvitað algjör kóngur þarna í hjarta varnarinnar. Hann er ekki bara frábær leikmaður heldur er hugarfar hans innan vallar einnig frábært. Þú getur sagt það sama um Almar Ormarsson og Steinþór Frey Þorsteinsson sem eru mjög öflugir leikmenn, svo var gaman að sjá hversu sterkur Hallgrímur Mar Steingrímsson var í þessu liði. Allir þessir fjórir leikmenn myndu styrkja hvert einasta lið í Pepsi-deildinni, ég er sannfærður um það. Þetta var mjög góður útisigur og svo er eitthvað sem segir mér að á Akureyri muni liðið vera öflugt. Liðið hefur ekki verið í efstu deild í mörg ár og því ætti að myndast mjög góð stemning. Ef KA getur gert heimavöllinn sinn sterkan gæti liðið strítt efstu liðum í allt sumar. Það verður fróðlegt að sjá hvernig KA tekst að eiga við þriggja manna vörnina sem FH er að spila með, sóknarmenn KA eru snöggir og gætu refsað FH þar,“ sagði Pétur Pétursson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, um málið.

Ekki rétt að dæma Breiðablik strax

Breiðablik stefnir á að verða Íslandsmeistari í sumar en miðað við frammistöðu liðsins í fyrsta leik verður það ógjörningur. Pétur telur þó ekki tímabært að dæma Blika en margir hafa farið í sleggjudóma um liðið eftir 1. umferðina. „Það kom kannski á óvart hversu illa Blikar spiluðu í þessum leik en að sama skapi getur maður sagt að það er alltaf rosalega erfitt að mæta nýliðum í 1. umferðinni, við sjáum þetta nánast á hverju ári og þetta ætti því ekki að koma á óvart lengur. Við skulum samt ekki vera að afskrifa Blika í einu né neinu eftir bara einn leik, þarna er mikið magn af flottum knattspyrnumönnum og Arnar Grétarsson er að fara inn í sitt þriðja tímabil með liðið. Menn skulu alveg róa sig í því að fara í einhverja sleggjudóma um liðið. Mér finnst þannig umræða ekki tímabær.“

Það besta sem sést hefur á Íslandi lengi

Íslandsmeistarar FH byrjuðu tímabilið með trukk og dýfu þegar liðið heimsótti Skagamenn í 1. umferð. FH mætir til leiks með nýtt leikkerfi í sumar sem býður upp á mikinn sóknarleik. „Mér fannst kafli úr þessum fyrri hálfleik hjá FH með því besta sem sést hefur á Íslandi í mjög langan tíma, boltinn gekk rosalega vel á milli manna og Skaginn var hálf meðvitundarlaus. Maður hugsaði nú með sér að þetta gæti alveg eins endaði með 7-0 sigri FH. Allt í einu var staðan hins vegar 2-1 fyrir Skagamenn og þá hugsaði maður á móti að FH mun líka fá fullt af mörkum á sig í sumar. FH klárar hins vegar leikinn og þeir spiluðu mjög vel, það vantaði varnarmenn í lið FH og þeir verða betri. Þetta 3-4-3 kerfi sem þeir nota í dag er mjög skemmtilegt og gefur marga möguleika. FH-ingar eiga mikið hrós skilið fyrir að þora að spila þetta kerfi með bara einn miðvörð heilan heilsu,“ sagði Pétur en Steven Lennon sóknarmaður liðsins stal senunni í 1. umferð og skoraði þrennu.

„Mér hefur aldrei fundist Lennon vera þessi týpíski framherji sem spilar alveg fremst á vellinum, hann gerði það síðustu sumur en núna fer hann í meira frjálst hlutverk í þessu kerfi og getur verið að þvælast úti um allt. Það hentar honum vel og hentar FH líka mjög vel að hafa hann svoleiðis.“

Hvað gera Reykjavíkurliðin?

Valur byrjaði á sigri í 1. umferð þegar liðið vann Víking Ólafsvík og liðið er til alls líklegt. „Mér fannst Valsliðið spila þennan leik frábærlega, þeir þurftu að hafa þolinmæði í þessum leik og sýndu þar með ágætis þroska í leik sínum. Ég er ekki á því að þeir þurfi einhvern framherja til að berjast þarna við toppinn í allt sumar, ég held að Valur muni berjast á fullu um titilinn með FH og KR. Ég er sannfærður um að þeir verði þarna, liðið hefur unnið bikarinn síðustu tvö ár og haldið kjarnanum í liðinu sínu. Valur er alltaf að spila betur og betur og ég sé ekki annað en að þeir verði í baráttunni fram eftir öllu.

Á sama tíma og Valur vann góðan sigur tapaði KR frekar óvænt fyrir Víkingi Reykjavík á heimavelli sínum. „Það er ekki neitt nýtt að KR tapi fyrsta leik á heimavelli, það hefur oft gerst. Víkingar eru með mjög fínt lið og eru mjög sterkir í taktík. Það er ekki neitt vandamál hjá KR þótt fyrsti leikur tapist. Þetta var leikur sem bæði lið gátu unnið. Það var vont fyrir KR að missa Kennie Chopart út af meiddan og þá var auðveldara fyrir Víkinga að loka bara á Óskar Örn Hauksson. Chopart tekur athyglina aðeins frá Óskari og gefur honum svæði. Ég sé ekki annað en að KR verði í toppbaráttu.“

Næsta umferð í Pepsi-deild karla:

Sunnudagur 7. maí
17.00 Stjarnan – ÍBV (Samsung-völlurinn)
19.15 Víkingur Ólafsvík – KR (Ólafsvíkurvöllur)

Mánudagur 8. maí:

18.00 FH – KA (Kaplakrikavöllur)
19.15 Víkingur R – Grindavík (Víkingsvöllur)
19.15 ÍA – Valur (Norðurálsvöllurinn)
19.15 Fjölnir – Breiðablik (Exta-völlurinn)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu

Ótrúleg myndbönd birtast – Stútuðu knæpu eftir gleðitíðindin og einn girti niðrum sig í miðri ræðu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit

Hörmulegar vítaspyrnur kostuðu City – Real Madrid komið í undanúrslit
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Eru byrjuð aftur saman eftir að hann var dæmdur fyrir að nauðga annari konu

Eru byrjuð aftur saman eftir að hann var dæmdur fyrir að nauðga annari konu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Haaland fjárfestir í fyrirtæki sem sérhæfir sig í vörum fyrir hárið

Haaland fjárfestir í fyrirtæki sem sérhæfir sig í vörum fyrir hárið