fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Sport

Uppbygging Laugardalsvallar forgangsmál Guðna

Er að koma sér inn í starfið – Geir hjálpaði til á þingi í Helsinki

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 9. apríl 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru tæpir tveir mánuðir síðan að Guðni Bergsson var kjörinn formaður KSÍ eftir að hafa átt í harðri baráttu við Björn Einarsson í kosningu til formanns þessa stærsta sérsambands innan íþróttahreyfingarinnar. Guðni þekkir starf KSÍ frá dögum sínum sem fyrirliði karlalandsliðsins en að stýra því sem formaður á dögum sem þessum er allt annað. KSÍ er í raun risastórt fyrirtæki sem veltir háum fjárhæðum á ári hverju. Starf sambandsins er viðamikið og í mörg horn að líta. Á fyrstu vikum hans í starfi hefur Guðni verið að koma sér inn í starfið sem er stórt og mikið og ljóst að það mun taka Guðna meiri tíma en hann hefur nú þegar fengið til að koma sér inn í allt.

„Þetta er búið að vera mjög viðburðaríkt og ég hef haft mjög gaman af þessu. Ég hef þurft að koma mér fyrir á skrifstofunni og það hefur verið í nægu að snúast. Þetta hefur verið fjölbreytt en farið vel af stað,“ sagði Guðni við DV um byrjun sína í starf.

Geir hjálpar Guðna að mynda tengsl:

Guðni var í vikunni á þingi á meðal Knattspyrnusambanda Evrópu (UEFA) en að mynda tengsl við formenn annarra sambanda og standa vörð um hagsmuni Íslands er eitt mikilvægasta verkefnið sem formaður KSÍ sinnir. Það gerði Geir Þorsteinsson, sem lét af störfum í febrúar, afar vel og hann var með Guðna í Helsinki í vikunni. „Maður er bara í því að setja sig inn í starfið, það er farið að styttast í knattspyrnusumarið og mótastarfið er mjög stórt og mikið. Við þurfum að semja við dómara um þeirra kaup og kjör. Ég var svo í gær að koma af UEFA-þingi í Helsinki. Það þing gekk vel, þessar fyrstu vikur hafa verið góðar og ég er að starfa með góðum hópi.

„Við erum að stefna að því að klára þá vinnu með Reykjavíkurborg og ríkisvaldinu í kringum leikinn við Króatíu í sumar.“

Svona þing eru mikilvæg til að skerpa á tengslum, Geir Þorsteinsson, heiðursforsmaður KSÍ og fyrrverandi formaður, fylgdi mér á þingið ásamt Klöru Bjartmarz framkvæmdastjóra. Eggert Magnússon var svo heiðursgestur hérna ásamt fleirum, við vorum því með ágætis hóp hérna. Það var gott að hafa þau með sér hérna til að kynna mig og koma mér inn í hlutina. Ég hef auðvitað bæði farið á FIFA-fund og UEFA-fund eftir að ég tók við en það tekur eðlilega tíma að ná þessu öllu. Það var mjög gott að hafa Geir með sér í Helsinki, hann er búinn að vera hérna og starfa í 20 ár. Það var gott fyrir hann að koma hingað og kveðja allt það góða fólk sem hann hefur unnið með og líka til að kynna mig. Það er mikilvægt að skerpa á öllum tengslum okkar inn í önnur sambönd.“

Starfsfólkið vinnur mjög gott starf

Guðni hefur á þessum tveimur mánuðum verið að setja sig vel inn í þá hluti sem felast í því að starfa hjá KSÍ en hjá sambandinu hefur hann starfsmenn með mikla reynslu. Guðni lofsyngur starfsfólkið sem er fáliðað miðað við starfsemi sambandsins en allir eru til í að leggja hendur á plóg.

„Það hefur verið mjög fínt að vinna með fólkinu hjá KSÍ, þetta er einvala lið og góður hópur. Það hefur verið gaman að fara í vinnuna í Laugardalnum, maður er að kynna sér alla hluti og það tekur tíma. Þetta hefur verið fjölbreytilegt. Starfsfólkið hjá KSÍ er að vinna mjög gott starf, ef maður bara ber okkur saman við önnur sambönd sem eru með jafn mörg landslið og við þá erum við í kringum 20 starfsmenn en í flestum öðrum löndum er það miklu meira og yfir 100 starfsmenn hjá sumum. Við erum með stórt deildarfyrirkomulag, fimm deildir hjá körlunum og tvær hjá konunum, það er mikið starf í kringum það.“

Eins og fram hefur komið er Guðni að koma sér inn í hlutina eins og hann orðar það en hvernig gengur honum að koma sínum málum inn í starf KSÍ? Guðni talaði fyrir málum eins og yfirmanni knattspyrnumála sem myndi tengja saman öll landslið.

„Það má segja það þannig að ég er að kynna mér hlutina vel, ég er að setja mig inn í þá. Ég er með ákveðinn aðgerðalista sem ég er að vinna í. Ég er að koma mér inn í upplegg stjórnarinnar og svo fer þessi vinna öll af stað.“

Gríðarleg fagmennska í landsliðinu

Guðni fór í síðasta mánuði í sína fyrstu ferð sem formaður með A-landsliði karla. Hann sá liðið vinna afar mikilvægan sigur á Kósóvó ytra í undankeppni HM. Hann hreifst af því starfi sem hefur skilað landsliðinu svo góðum árangri.

„Ferðin var mjög ánægjuleg og flott sem mín fyrsta upplifun að ferðast svona með landsliðinu, það var virkilega gaman að fylgjast með starfinu og hvað hópurinn er samstilltur. Heimir og þjálfarateymið eru að vinna mjög gott starf svo ekki sé minnst á starfsfólkið í kringum þá og liðið sem gerir hlutina af mikilli fagmennsku. Það er gaman að sjá hvað leikmennirnir eru samstilltir og faglegir í sinni nálgun, þetta er frábær hópur og góður liðsandi. Strákarnir eru með mikinn metnað og vilja ná meiri árangri. Þeir vilja fylgja eftir þessum góða árangri síðasta sumar. Ég var mjög ánægður með þessa ferð og að kynnast þeirra starfi betur.“

Spenntur fyrir EM hjá stelpunum

Sumarið í fótboltanum er stórt, strákarnir taka toppslag við Króatíu í undankeppni HM en stærsta verkefnið er för þeirra á EM í Hollandi. Guðni heldur til Hollands eftir helgi þar sem stelpurnar leika æfingarleik og undirbúa sig fyrir mótið. „Það bíður mín núna ferð til Hollands þar sem ég mun sjá kvennalandsliðið spila í næstu viku, þar er Freyr að vinna mjög öflugt starf með alla í kringum sig. Ég fylgi þeim eftir þar og get svo ekki beðið eftir sumrinu hjá þeim. Við höfum verið að ná góðum árangri og það verður spennandi að sjá stelpurnar á EM í sumar.“

Uppbygging Laugardalsvallar forgangsmál

Guðni leggur mikla áherslu á það í sínu starfi að á Laugardalsvelli fari fram mikil uppbygging á næstu árum. Völlurinn hefur löngu sprengt starfsemina utan af sér, aðstaða fyrir leikmenn í búningsklefa er vægast sagt ömurleg, völlurinn er orðinn of lítill og svo er það hlaupabrautin sem pirrar marga. Á öllum helstu völlum í Evrópu eru hlaupabrautir farnar, knattspyrna og frjálsar íþróttir eiga litla samleið. Til þess að KSÍ geti farið í breytingar á Laugardalsvelli þarf að finna frjálsum íþróttum varanlegt heimili.

„Uppbygging Laugardalsvallar er svo mál sem við verðum að skoða sterklega á næstunni, það þarf að skoða það og finna út úr því mjög fljótlega hvað skuli gera. Það er mjög mikilvægt að uppbygging Laugardalsvallar eigi sér stað á næstunni. Þetta er í þeim fasa að við erum að finna bestu leiðina og að stilla upp valkostum sem við höfum. Við erum að stefna að því að klára þá vinnu með Reykjavíkurborg og ríkisvaldinu í kringum leikinn við Króatíu í sumar. Við viljum vera klárir með tillögur og skoða besta kostinn um það leyti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“