Pepsi-deildin hefst á sunnudag – Skagamönnum og Ólafsvíkingum spáð falli
Pepsi-deild karla fer af stað á sunnudag en búast má við gríðarlegu fjöri bæði á toppi og botni deildarinnar. FH-ingar unnu deildina á síðustu leiktíð og eru líklegir til þess að endurtaka leikinn í ár. KA og Grindavík eru nýliðar í deildinni en bæði lið mæta sterk til leiks og gætu haldið sæti sínu í deildinni. En hvernig endar þetta allt saman? Hér er spá fyrir deildina.
Heimir Guðjónsson ætlar sér að byrja mótið í 3-4-3 kerfinu og er það hluti af því að liðið ætlar sér að spila sterkari sóknarleik en á síðustu leiktíð. Liðið vann deildina nokkuð auðveldlega á síðustu leiktíð án þess að spila sinn besta leik. Ljóst má þó vera að Heimir gæti auðveldlega farið aftur í 4-3-3 kerfið sem hefur skilað FH mörgum titlum síðustu ár.
Breiðablik endaði í sjötta sæti deildarinnar í fyrra og missti af Evrópusæti með því að spila illa í síðustu umferðunum. Vandamál Breiðabliks var fyrst og síðast að skora mörk og klára leiki og það vandamál virðist Arnar Grétarsson hafa leyst í vetur. Liðið hefur samið við Hrvoje Tokic, sem var markahæstur hjá Víkingi Ólafsvík í fyrra, Martin Lund Pedersen, sem var markahæsti leikmaður Fjölnis, og Aron Bjarnason, sem var markahæsti leikmaður ÍBV.
Liðið er afar vel mannað í hjarta varnarinnar og getur auðveldlega spilað 3-4-3 kerfið og einnig 4-3-3 kerfið. Sóknarleikur liðsins er meira álitamál en liðið hefur misst þrjá öfluga sóknarmenn í vetur en á dögunum kom Tobias Thomsen frá Danmörku til liðsins, þá samdi Garðar Jóhannsson einnig við KR en ljóst má vera að hann verði í aukahlutverki.
Valsmenn eru með vel mannað lið en fróðlegt verður að sjá hvernig liðinu tekst til með að fylla skarð Kristins Freys Sigurðssonar sem hélt til Svíþjóðar. Kristinn var magnaður á síðustu leiktíð og hélt uppi leik liðsins með mörkum og stoðsendingum. Auk hans eru lykilmennirnir Kristian Gaarde og Andreas Albech horfnir á braut en þeir léku stórt hlutverk á síðustu leiktíð. Liðið hefur hins vegar styrkt sig á móti og þeir Nicolas Bögild og Nicolaj Köhlert eru mætti til leiks og ættu báðir að styrkja Valsara. Kantmaðurinn Dion Acoff kom svo frá Þrótti en hann getur ávallt ógnað með hraða sínum og krafti.
Stjarnan hefur í raun tjaldað öllu til og er með öflugan leikmann í hverri stöðu og talsverða breidd. Vandamál liðsins gæti verið að skora mörk en framherjar liðsins voru kaldir á síðustu leiktíð. Hólmbert Aron Friðjónsson hefur alla hæfileika sem til þarf en uppi við markið hefur hann verið kaldur frá því að hann kom til landsins. Guðjón Baldvinsson er sömuleiðis afar öflugur framherji en hefur glímt við sama vandamál og Hólmbert.
Fjölnir hefur hins vegar í vetur misst miklu meira en liðið hefur fengið til sín en ungir og efnilegir strákar gætu leikið mjög stórt hlutverk. Hans Viktor Guðmundsson, Ægir Jarl Jónasson og Birnir Snær Ingason gætu orðið algjörir lykilmenn auk fleiri stráka sem hafa spilað í vetur. Fjölnir var vægast sagt slakt í Lengjubikarnum en þar endaði liðið í neðsta sæti í sínum riðli.
Nýr þjálfari er í brúnni, Kristján Guðmundsson tók við ÍBV í vetur og hann er fluttur til Eyja. Kristján hefur átt nokkur erfið ár í þjálfun en gæti komist á flug á nýjan leik með ÍBV. Liðið hefur spilað ágætlega á köflum í vetur og varnarlína liðsins er öflug en sóknarleikurinn er ögn meira álitamál. Kristján þarf að treysta á að Arnór Gauti Ragnarsson, ungur framherji sem kom frá Breiðabliki, geti skorað og einnig að Gunnar Heiðar Þorvaldsson haldist heill heilsu.
Hjá KA eru menn stórhuga og því væru margir svekktir með það að ná „bara“ 8. sætinu. K A vann 1. deildina í fyrra en margir bjuggust við algjörri flugeldasýningu hjá liðinu á leikmannamarkaðnum í vetur. Sú varð hins vegar ekki raunin. KA hefur styrkt sig skynsamlega með þeim Emil Lyng, Darko Bulatovic og Steinþóri Frey Þorsteinssyni. Steinþór var magnaður í Pepsi-deildinni áður en hann hélt til Noregs og gæti hann hjálpað mikið.
Hjá Víkingi gera menn kröfur en liðið hefur ekki virkað sannfærandi í vetur og þá hefur liðið misst marga sterka pósta úr sínu liði. Þar ber fyrst að nefna Óttar Magnús Karlsson sem hélt sóknarleik liðsins á floti í fyrra en að auki er Gary Martin farinn frá félaginu eftir stutt stopp. Igor Taskovic hafði svo mikla reynslu og þekkti Pepsi-deildina vel en Víkingar ákváðu að láta hann fara. Víkingar hafa þó fengið til sín þrjá erlenda leikmenn en eins og ávallt þegar slíkt er gert er um lottó að ræða.
Grindvíkingar eru mættir aftur í deild þeirra bestu og að halda sæti sínu þar væri gott. Grindavík spilar agaðan varnarleik en er öflugt sóknarlega eins og sást í 1. deildinni í fyrrasumar. Liðið hefur í vetur verið að spila með fimm manna vörn sem hefur virkað vel, sóknarleikur liðsins gæti þó orðið til vandræða. Að skora mörk í 1. deild og síðan í Pepsi-deild er annað og stærra verkefni.
Skagamenn hafa gert vel síðustu ár að halda sér í deild þeirra bestu en árið í ár gæti orðið erfitt. Liðið hefur misst sterka leikmenn, en Ármann Smári Björnsson lagði skóna á hilluna og markvörðurinn, Árni Snær Ólafsson, verður frá allt tímabilið vegna meiðsla. ÍA hefur sótt sér tvo leikmenn frá Póllandi, um er að ræða miðvörð og sóknarmann en auk þeirra kom Ingvar Þór Kale til félagsins.
Það væri eitt mesta kraftaverk í sögu fótboltans á Íslandi ef Ejub Purisevic tækist að halda Ólafsvík uppi annað árið í röð. Liðið hefur misst öfluga leikmenn í vetur og ekki náð að fylla þau skörð hingað til. Gæti orðið mjög erfitt tímabil.