Sex lykilmenn í íslenska landsliðinu í knattspyrnu eru meiddir. Óvíst erum þátttöku þeirra í næsta leik í undankeppni HM í knattspyrnu en Ísland leikur við Kosóvó eftir 18 daga. Tveir meiddust um helgina, þeir Arnór Ingvi Traustason og Birkir Bjarnason en sá fyrrnefndi ætti þó að jafna sig fljótt.
Flestir leikmannanna sem um ræðir spila á miðju eða í sókn. Góðu fréttirnar á miðsvæðinu eru hins vegar þær að miðjumennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson, hafa líklega aldrei verið í betra formi. Hér er listi yfir þá lykilmenn í landsliðinu sem glíma við meiðsli. Afar ólíklegt verður að teljast að Kolbeinn, Alfreð, Birkir og Jóhann Berg taki þátt í landsleiknum sem framundan er.
Arnór Ingvi Traustason fór snemma á leikvelli í leik Rapdi Vínar og Salzburg í austurrísku úrvalsdeildinni í gær. Það strekktist á innra liðbandi í hnénu og hann vonast til að þurfa ekki að hvíla meira en í fáeina daga.
Kolbeinn Sigþórsson hefur ekki spilað leik síðan á EM. Ekkert bendir til þess að hann spili fótbolta alveg í bráð.
Alfreð Finnbogason hefur glímt við meiðsli meira og minna alla leiktíðina. Hann hefur ekki spilað leik síðan í 2-0 sigrinum á Tyrklandi á Laugardalsvelli í október. Hann er þó á batavegi og hefur ekki útilokað þátttöku í næsta landsleikl.
Birkir Bjarnason meiddist í leik með Aston Villa um helgina. Hann teigði liðbönd í hné og óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru.
Jóhann Berg Guðmundsson hefur í þrígang meiðst á tímabilinu. Hann reif upp úr liðbandi í leik fyrir skemmstu og óvíst er hvenær hann getur leikið knattspyrnu á nýjan leik.
Kári Árnason hefur ekki spilað síðustu leiki fyrir lið sitt í Kýpur en hann á von á því að geta spilað næsta leik fyrir félag sitt. Hann verður vonandi klár í slaginn gegn Kósóvó.
Við þetta má bæta að Theódór Elmar Bjarnason, sem stundum leikur þær stöður í landsliðinu sem Birkir og Jóhann Berg leika, verður í leikbanni á móti Kosóvó.