Škoda Elroq var mest seldi nýi bíllinn á Íslandi í október, samkvæmt tilkynningu frá Heklu, umboðsaðila Škoda á Íslandi.
Mjótt var á munum á toppnum, en aðeins fimm nýskráningar skildu að fyrsta og þriðja sætið.
Alls voru 50 nýir Škoda Elroq skráðir á Íslandi í október og tryggði það bílnum efsta sætið á lista yfir mest seldu nýju bíla mánaðarins.
Samkeppnin um toppsætið var þó hörð. Toyota bZ4X Touring fylgdi fast á eftir með 46 nýskráða bíla og BYD Sealion 7 hafnaði í þriðja sæti með 45 bíla.
Þrír mest seldu nýju bílarnir í október voru samkvæmt tilkynningunni:
Škoda Elroq – 50 bílar
Toyota bZ4X Touring – 46 bílar
BYD Sealion 7 – 45 bílar