Samstarf

Hvort sem þú ferð til sólarlanda eða í útilegu: Þetta eru snyrtivörurnar sem þú þarft fyrir sumarið!

Mynd

Íslenska sumarið er dásamlegt, en það getur líka tekið rækilega á húðina og hárið. Einn daginn er glampandi sól og blíða, þann næsta erum við mætt í rokið og rigninguna á útihátíð. Svo erum við mörg sem stefnum suður á bóginn þar sem sterk sól, klór og saltvatn bíða okkar. Sama hvar þú eyðir sumrinu, þá er lykillinn að heilbrigðum sumarljóma rétta umhirðan.

Netverslunin Boozt hefur tekið saman sínar vinsælustu húð- og hársnyrtivörur fyrir sumarið. Hér skoðum við heitustu trendin, með sérstakan fókus á vörurnar sem eru að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum.

K-Beauty: Leyndarmálið á bak við fullkominn „Glass Skin“ ljóma

Kóresk húðumhirða, eða K-Beauty, snýst um að byggja upp djúpan raka, jafna húðtóninn og draga fram náttúrulegan ljóma. Hérna eru þrjár algjörar lykilvörur sem eru algjört möst fyrir sumarið:

Anua – TikTok æðið sem svíkur engan

Anua er eitt heitasta merkið í snyrtiheiminum í dag og á það fyllilega skilið. Vörurnar eru hannaðar til að lágmarka sjáanlegar svitaholur og róa húðina.

Mynd
Mynd

Medicube – Hágæða húðvörur sem skila snyrtistofu árangri

Fyrir ykkur sem vilja sjáanlegan árangur og fágaða áferð er Medicube svarið.

  • Medicube Zero Pore Pad 2.0: Þessir tilbúnu andlitspúðar eru algjör bjargvættur í ferðalagið. Þeir innihalda mildar sýrur sem fjarlægja óhreinindi, minnka svitaholur og endurnýja húðina á nokkrum sekúndum.
  • Medicube Triple Collagen Serum 4.0: Sannkallað rakaskot fyrir þurra eða þyrsta húð. Þetta serum inniheldur þrjár gerðir af kollageni sem fyllir upp í fínar línur og gefur húðinni þéttleika og „plump“ áferð.
  • Medicube PDRN Pink Peptide Eye Cream: Augnkrem sem lýsir upp þreytt augu eftir langt ferðalag eða langar sumarnætur. Það dregur úr bólgu og vinnur gegn dökkum baugum með öflugum peptíðum.
Mynd

Biotherm – Djúpur raki og ferskleiki sem endist

Sama hvort það er íslenski vindurinn eða spænska sólin, hvort tveggja getur þurrkað húðina upp á svipstundu. Biotherm býður upp á léttar en kraftmiklar formúlur sem henta sumrinu fullkomlega.

  • Biotherm Aquasource Gel: Klassíska rakakrem-hlaupið sem íslenskar konur elska. Það dælir raka inn í húðina í allt að 48 klukkustundir án þess að skilja eftir sig feita eða klístraða áferð. Fullkomið undir farða eða eitt og sér á heitum dögum.
  • Biotherm Hydra-Bronze Drops: Nærandi 3-í-1 brúnkudropar með hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpan raka og dásamlegan sólkysstan lit á aðeins fjórum klukkustundum.
  • Biotherm Aqua Glow dagkrem: Létt dagkrem sem er ríkt af vítamínum sem vinna gegn þreytumerkjum og gráma í húðinni. Þetta er leyndarmálið til að viðhalda fersku „nývöknuðu“ útliti allan daginn.
Mynd

Hárið: Bjargaðu því frá sól, salti og hita

Útfjólubláir geislar, klór og saltvatn geta fljótt breytt fallegu hári í þurrt. Þessi tvö merki eru í algjörum sérflokki þegar kemur að því að vernda og næra hárið.

Kérastase – Lúxusvörn og ómótstæðilegur glansi

Kérastase vörurnar virka eins og skjöldur á hárið gegn hita og áreiti.

Mynd

Redken – Styrkur, fylling og viðgerð

Fyrir hár sem þarf ákveðna hjálp og lyftingu yfir sumarið er Redken rétti kosturinn.

  • Redken Volume Injection sjampó: Íslenskt hár á það til að verða flatt í raka eða eftir sundferðir. Þetta sjampó lyftir hárinu frá rótum og gefur því samstundis fyllingu og léttleika.
  • Redken Acidic Color Gloss sjampó: Sjampó sem tryggir að háraliturinn haldist lifandi og fallegur, verndar hárið gegn því að verða líflaust og tryggir langvarandi glans.
  • Redken Acidic Bonding Concentrate 5-Min Liquid Mask: Ef sumarið er þegar farið að taka sinn toll er þessi fimm mínútna maski algjör bjargvættur. Hann smýgur djúpt inn í hárið, gerir við skemmdir og styrkir það eftir aðeins eina notkun.
Mynd

Ertu klár fyrir sumarið?

Þú finnur allt fyrir sumarljómann, frá heitustu K-Beauty merkjunum yfir í klassískar hárvörur, á Boozt.com. Með skjótri og öruggri heimsendingu er einfalt að græja snyrtibudduna áður en haldið er í fríið, hvort sem það er í sólina á Tenerife eða útileguna í Vaglaskógi.