,,Það var veiðiþjófur hérna í ánni í gær og við urðum að kalla til lögregluna. Hann fór ekki þó að honum væri sagt að fara,“ sagði Trausta Bjarnason á Skarðsströnd en veiðiþjófur var rekinn úr Krossá eftir mikið stapp.
,,Þetta var Þjóðverji og veifaði alþjóðlegu veiðileyfi sem hann var með en hann hafi ekki látið segjast að fara burtu úr ánni. Hann tók á rás inn dalinn hérna og þegar hann fannst var hann búinn að veiða einn fisk,“ sagði Trausti.
Framkoma þessa veiðiþjófs var með eindæmum. Hann fór ekkert þó honum væri sagt að fara úr ánni og reif bara kjaft. Stöngin og aflinn var gerður upptækur en ekki veiðikassi sem hann var með. Hann fékk að halda honum.
Það var gaman að sjá þetta alþjóðlega veiðileyfi sem á víst að að gilda í öll vatnasvæði heims. Hver gefur út þetta veiðileyfi?
Mynd: Krossá á fallegum sumardegi.