,,Ég var að koma úr Elliðavatni og veiddi ágætan urriða, þetta var gaman,“ sagði Olgeir Þór Karlsson sem var i Elliðavatni í gær en ágæt veiði hefur verið í vatninu og þá sérstaklega í bleikjunni. Hann sagðist ennfremur hafa fengið fiskinn á rækju.
Nokkru neðar í Elliðaánum komu á land í gær 18 laxar í Elliðaánum sem verður að telja verulega gott í þessu árferði. Elliðaárnar hafa gefið um 180 laxa og tveggja ára laxinn ennþá að gefa þegar smálaxinn sést ekki mikið.
Mynd. Olgeir Þór Karlsson með urriðann úr Elliðavatni í gærdag.