Leirvogsá er komin aftur til Stangaveiðifélags Reykjavíkur en gengið var frá undirritun samnings þess efnis nú á dögunum. Það má með sanni segja að þetta eru gleðifréttir fyrir félagsmenn og velunnara árinnar.
Verið er að skoða veiðifyrirkomulag fyrir næsta sumar og verður það auglýst nánar síðar. Meðalveiði árinnar eru 432 laxar síðustu 10 ára og t.a.m fór hún í 1173 laxa árið 2008.
Innan SVFR ríkir ánægja að hafa bætt enn einni perlunni til boða til félagsmanna.
Leirvogsá er spennandi og gjöful laxveiðiá í fögru umhverfi aðeins steinsnar frá höfuðborginni. Leirvogsá er dragá með lindarvatnsáhrifum og er vatnasvið hennar um það bil 85 ferkílómetrar. Hún rennur úr Leirvogsvatni og er um það bil 12 kílómetra löng, en fiskgengi hlutinn er um átta kílómetrar og endar undir Tröllafossi. Umhverfi árinnar er einstakt með fjölda fallegra hylja og strengja sem freista laxveiðimanna.