,,Við vorum við veiðar í Selá í Vopnafirði og það var helviti gaman, fullt af fiski víða í henni,“ sagði Jógvan Hansen sem glímdi við nokkra skemmtilega fiska þar og einn sem hann slóst við lengi, lengi, Seláin svíkur ekki,“ sagði Jógvan ennfremur.
Ef við rennum yfir efstu laxveiðiárnar er Selá í Vopnafirði ofarlega en efst er Eystri Rangá með 2560 laxa, síðan kemur Selá í Vopnafirði með 1170 laxa. Í Ytri Rangá hafa veiðst 1110 laxa, Miðfjarðará ermeð 1100 laxa síðan Urriðafoss í Þjórsá með 730 laxa. Í þessari upptalningu getum við þess að í Þverá í Borgarfirði hafa veiðst 660 laxar fram að þessu
. Listinn er svo sem enginn skemmtilesning, miklu heldur eiginleg hrollvekja en maður verður samt að skoða vikulega tölurnar í veiðinni hjá Angling. Lesturinn er fróðlegur.
Mynd: Frá Selá í Vopnafirði.