,,Skjálfandafljót er í góðum gír þessa dagana en það komu alls 16 laxar á land í fyrradag og 15 laxar á land í gær,“ sagði Stefán Sigurðsson er við spurðum um ganginn í Skjálfandafljóti.
,,Það er greinilega lax að ganga og verður spennandi að fylgjast með næstu daga. Við heyrðum af veiðimanni sem var í Barnafelli í gær og setti hann í 9 laxa á 2 klukkutímum en þurfti síðan að hætta vegna kvótaleysis,“ sagði Stefán ennfremur.
Skjálfandafljót hefur gefið 170 laxa og veiðin verið ágæt síðustu daga.