,,Ég er búinn að veiða aðeins, en kannski ekki nóg,“sagði Magnús Anton Magnússon sem reynir að komast í nokkra veiðitúra á hverju sumri. Magnús Anton finnst eins og fleiri veiðimönnum gaman að renna fyrir fisk víða um land. Magnús hefur mikið veitt á Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi og oft veitt þar vel.
,,Fór í Blöndulón um daginn og þar veiddi ég fimm fiska, þrjá urriða og tveir bleikjur. Ætla að reyna að komast síðan að veiða Lýsunni,“ sagði Magnús sem þekkir Vatnasvæði Lýsu vel enda veitt þar í mörg ár.
Silungsveiðin gengur víða vel ennþá þó aðeins hafi dregið úr henni. Það er kominn mikill gróður í vötnin og þá getur verið erfitt að ná til fisksins en menn reyna. Það er þess virði.
Mynd. Magnús Anton Magnússon með flotta bleikju úr Blöndulóni.