,,Við vorum að veiða í Ölfusárósnum þegar ég setti fluguna í mig. Það tók nokkurn tíma að ná henni úr en tókst að lokum eftir nokkrar tilraunir,“ sagði Hjörtur Sævar Steinason í samtali við Veiðipressuna.
,,Það er helvíti seigt í manni og tók tíma. Félagi minn klippi síðan agnhaldið. Það var helvíti erfitt að ná henni. Þetta gerðist í fyrsta kasti þarna en svo færðum við okkur í Úlfljótsvatn og þar fengum þrjár bleikjur en þar misstum við nokkrar líka,“ sagði Hjörtur ennfremur eftir þessa lífsreynslu.
Það getur verið helvíti vont að setja fluguna í hausinn á manni og erfitt að ná henni úr. Þess vegna er betra að fara alltaf öllu með gát og setja öryggið á oddinn í veiðiskapnum.
Mynd. Flugan situr föst í veiðimanninum en náðist að lokum.