Laxá í Aðaldal er að detta í 200 laxa og það hafa veiðst nokkrir vænir þar eins og þessi sem Arnar Guðjónsson veiddi á svæðum Laxárfélagsins, 104 sentimetra.
,,Þetta var allt í lagi, fengum nokkra góða laxa, en mættu vera fleiri,“ sagði veiðimaður sem var á þessum slóðum í vikunni.
Brynja Gunnarsdóttir var við Laxá í gærkveldi og var nýbúinn að landa flottum laxi þegar við náum sambandi við hana.
,,Já, var að landa laxi í Bjargstreng 70 sentimetra,“ sagði Brynja og bætti við.
,,Ég fékk laxinn á fluguna Blue Boy númer 14 og það tók 20 mínútur að landa laxinum. Það er frekar dræm veiði en hollið er komið með um 30 laxa,“ sagði Brynja við Laxá.
Mynd. Brynja Gunnarsdóttir með laxinn sem veiddi í gær á fluguna Blue Boy.