,,Þetta var gaman en fiskinn veiddi ég í Brúarhylnum og hann tók rauða franes,“ sagði Birgir Örn Pálmason sem á heiðurinn af fyrsta fiskinum í Leirvogsá þetta sumarið. Um var að ræða fallegan sjóbirting og var Birgir Örn að vonum kátur.
,,Það var virkilega gaman að koma þessum sjóbirting á land, svolítil vinna sem skilaði sér á endanum vel. Þetta var bara mjög skemmtilegt,“ sagði Birgir Örn veiðimaðurinn klóki eftir fyrsta fiskinn úr ánni þetta sumarið.