Dorgveiðikeppni leikjanámskeiða í Hafnarfirði var haldinn núna í vikunni. Rúmlega 400 hafnfirskir dorgveiðimenn á aldrinum 6-12 ára mættu á Flensborgarbryggju, munduðu veiðarfærin og kepptust við að veiða sem flesta og furðulegustu fiska.
Fiskarnir sem komu í þriðjudaginn 25.júní karið voru marhnútar, þorskur, ufsi, krossfiskar og krabbar.
Fimm fengu verðlaun fyrir flesta og furðulega fiska. Að þessu sinnu voru furðufiskarnir þrír krossfiskar og þá veiddu þeir Tristan 10 ára, Jón Oddur 7 ára og Kristjón 7 ára. Sá sem veiddi flesta fiska var Hrafnkell 10 ára en hann veiddi þrjá fiska. Sá sem veiddi stærsta fiskinn var Friðrik 9 ára.