Það var Stefán Sigurðsson sem veiddi fyrsta lax sumarsins í Þjórsá þetta sumarið en veiðin í ánni hófst þar snemma í morgun.
Þetta var flottur tveggja ára lax sem veiddist á maðkinn en áður höfðu sloppið tveir á fluguna. Fjörið er greinilega að byrja með látum í anni og verður ekki annað sagt en skemmtilegur tími sé fram undan.
Mynd: Fyrsta laxinum fagnað á bökkum Þjórsár í fallegu veðri í morgun.