Nýi nýi bæklingurinn okkar var að detta í hús og við erum mjög hressir með hann, Bæklingurinn inniheldur góðar og nytsamar upplýsingar fyrir veiðimenn,“ sagði Halldór Gunnarsson einn af eigendum Flugubúllunnar í Kópavogi.
,,Það er ýmislegt í boði hjá okkur, enda höfum við fengið frábær viðbrögð síðan við opnun hérna búðina,“ sagði Halldór og rétti viðskiptavini bæklinginn. Veiðimenn og konur voru að gera sér ferð til að ná í bæklinginn í búðina og svo var stutt í að veiðin byrji allavega í sjóbirtingunum.
,,Það verður farið í það strax eftir helgina að dreifa á fullu,“ sagði Halldór ennfremur.
Mynd. Halldór Gunnarsson með fyrsta eintakið af bæklingnum frá Flugubúllunni, Veiðilíf. Mynd G.Bender