Það eru nokkrar breytingar á Veiðikortinu milli ára og nokkur vatnasvæði bætast við á móti öðrum sem hverfa úr kortinu. Hreðavatn í Norðurárdal í Borgarbyggð kemur nýtt inn og verður gaman að geta staldrað við í fallegu umhverfi og kastað fyrir silung. Góð veiði er í vatninu og hentar það sérlega vel fyrir fjölskyldur.
Einnig er gaman að segja frá því að Hólmavatn og Laxárvatn í Dölum koma aftur inn eftir nokkurt hlé. Einnig kynnum við Meðalfellsvatn inn sem nýtt vatnasvæði þar sem það var ekki formlega komið inn í bæklinginn hjá okkur þar sem það kom inn síðastliðið vor eftir smá hlé.
Vötnin sem hætta í Veiðikortinu eru vötnin í Svínadal (Eyrarvatn, Geitabergsvatn og Þórisstaðavatn) auk Hítarvatns, en Hítarvatn hefur verið í kortinu frá upphafi.Það verður nóg úrval frábærra veiðivatna næsta sumar og veiðimenn geta strax farið að undirbúa komandi sumar með því að setja Veiðikortið 2019 á jólagjafalistann, en kortið kemur út fyrstu vikuna í desember eins og vanalega.
Verðið á Veiðikortinu verður óbreytt frá því í fyrra eða aðeins kr. 7.900.