,,Það hefur gengið mjög vel í Krossá í sumar og hún er greinilega að lifna við eftir fimm ára lægð,“ sagði Guðjón Jónsson er við inntum frétta af Krossá í Bitrufirði.
,,Það eru komnir eitthvað rúmlega 70 laxar í veiðibókina og margir fiskar víða í ánni, þó mest í Berghylnum og Fosshyl, þar sem hann safnast í. Útlitið er bara gott og ánægjulegt að það sé kominn fiskur því þá er jú alltaf veiðivon,“ sagði Guðjón Jónsson ennfremur.
Það er frábært að Krossá sé að komast úr lægðinni, áin er stórskemmtilegt og gaman að veiða í henni enda fjölbreyttir veiðistaðir víða um ána.