fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Þetta er sannleikurinn um áhrif þess að borða brauð daglega

Pressan
Laugardaginn 30. maí 2026 14:30

Brauð er vinsælt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brauð er fastur hluti af mataræði margra, sérstaklega í morgunmat, enda er það bragðgott og auðvelt að byrja daginn með því að borða brauð. En er óhollt að borða brauð daglega?

Raquel Antunes, næringarfræðingur hjá Grupo Valsa í Rio de Janeiro í Brasilíu, segir að áhrif brauðneyslu tengist því hvernig brauð er borðað og hvernig það fellur inn í mataræðið.

Að sögn Globo sagði hún að ofurunnin brauð, sem eru úr hveiti og innihalda mikið af viðbættum efnum, innihaldi yfirleitt lítið af trefjum og hækki blóðsykurinn, sem dregur úr næringargildi brauðsins.

Þetta gerir að verkum að brauð er oft tengt við þyngdaraukningu því það getur hækkað blóðsykurinn og dregið úr mettunartilfinningu vegna skorts á trefjum.

Á hinn bóginn inniheldur heilhveitibrauð, með kjörnum, fræjum eða höfrum, meira af trefjum sem styrkja mettunartilfinninguna og hjálpa til við að koma jafnvægi á blóðsykurinn. Svona brauð hentar betur til daglegrar neyslu.

Antunes sagði að það sé engin ein regla um hversu mikið brauð sé óhætt að borða daglega því það verði að líta á þetta í samhengi við lífsstíl, næringarþörf, heilsufar og hvernig brauð er borðað.

Hún sagði að manneskja, sem hreyfir sig mikið, geti innbyrt meira af kolvetnum á dag en manneskja sem glímir við sykursýki eða efnaskiptavanda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman