fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Skotið tvisvar á Karl konung – Viðbrögð hans komu öllum á óvart

Pressan
Laugardaginn 30. maí 2026 19:00

Karl og Camilla eiginkona hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvisvar var skotið á Karl konung árið 1994 þegar hann ætlaði að fara að flytja ræðu í Ástralíu. Hann var þá krónprins og var í opinberri heimsókn. Sem betur fer var aðeins um púðurskot að ræða en það vissi krónprinsinn auðvitað ekki þá. En viðbrögð hans vöktu mikla athygli.

Það vakti að vonum mikla athygli viðstaddra að Karl virtist ekki kippa sér mikið upp við þetta, hann hreyfðist ekki úr stað og leit síðan niður til að skoða ermahnappana sína. Að sögn enskra fjölmiðla fékk hann í kjölfarið viðurnefnið „Prince of Coolness“ (Svali prinsinn).

Express segir að prinsinn hafi verið að undirbúa sig undir að flytja ræðuna, þegar ungur maður, sem síðar kom í ljós að var hinn 23 ára David Kang, gekk að honum og skaut tveimur skotum úr startbyssu. Sem betur fer var aðeins um púðurskot að ræða.

Þegar Karl ræddi þetta atvik síðar sagði hann að það hefði verið skelfilegri lífsreynsla þegar karlfíll réðst á hann og bætti við að það „væri svolítið kjánalegt að vera að skjóta“.

Kang ætlaði sér ekki að drepa Karl, hann ætlaði bara að ná athygli hans, sem hann gerði með þessu, en í staðinn fyrir að geta talað við prinsinn, var hann lagður í jörðina og færður í varðhald.

Kang var síðar dæmdur til að vinna 500 klukkustundir í samfélagsþjónustu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND