fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Óvæntar niðurstöður rannsóknar – Að spara peninga hefur áhrif á skapið

Pressan
Laugardaginn 30. maí 2026 10:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gleðst þú þegar þú hefur lagt smávegis pening til hliðar? Eða fyllist þú gleði og stolti þegar þú nærð að sleppa við einhver útgjöld sem þú hefðir annars þurft að greiða fyrir?

Ef svo er, þá er það ekki undarlegt því það virðist vera samhengi á milli þess að spara peninga, hvort sem það er að leggja fyrir eða með lægri útgjöldum, og gleði.

Metro segir að sparnaður sé því ekki bara góður fyrir fjárhag okkar, heldur hafi hann einnig jákvæð áhrif á andlega vellíðan okkar.

Vísindamenn við University of South Australia rannsökuðu tengslin á milli daglegra fjárhagslegra vana og andlegrar líðanar.

Allt frá því að leggja reglulega til hliðar til þess að greiða reikninga á réttum tíma er mjög gott fyrir andlega heilsu fólk. Ástralska rannsóknin bendir því til að fjármálin og skapið þitt tengist sterkari böndum en þú heldur.

Í rannsókninni var fylgst með rúmlega 17.000 manns, 15 ára og eldri, í tvo áratugi. Vísindamennirnir komust að því að fólk sem var með traustar fjárhagslegar venjur, sérstaklega þeir sem lögðu reglulega til hliðar og greiddu reikninga á réttum tíma, sagðist líða betur andlega og það sagðist einnig vera orkumeira, sagði félagslífið vera betra og það sagðist einnig vera mjög hamingjusamt.

Rajabrata Banerjee, prófessor í hagfræði, sagði að þrátt fyrir að fjárhagslega tengt stress hafi lengi verið þekktur þáttur hvað varðar andlega líðan, þá hafi sjónunum ekki svo mikið verið beint að jákvæðum áhrifum góðra fjárhagsvana á borð við að leggja peninga til hliðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman