fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Ótrúleg samsæriskenning um Barron Trump – Nú skýrir Lara Trump frá hvað er satt

Pressan
Laugardaginn 30. maí 2026 17:00

Barron . Trump með móður sinni, Melaniu Trump(Mynd/Getty)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að undanförnu hefur ótrúleg samsæriskenning (þær eru nú yfirleitt ansi ótrúlegar þessar samsæriskenningar) um Barron Trump, yngsta son Donald Trump, verið á miklu flugi á Internetinu.

Lara Trump, tengdadóttir Donald Trump, heyrði af þessu og ákvað að að skýra frá sannleikanum hvað þetta varðar í hlaðvarpinu sínu.

Hún sagðist hafa rekist á mörg myndbönd og færslur um Barron Trump en ein samsæriskenning hafi skorið sig úr og henni vilji hún svara.

Barron, sem er tvítugur, hefur, ólíkt öðrum í fjölskyldunni, látið lítið fyrir sér fara og það er kannski ástæðan fyrir að fólk hefur svo gaman af að tala um hann og búa til samsæriskenningar.

Samsæriskenningin, sem Lara vísaði til, gengur út á að Barron sé tímaferðalangur.

„Ég vil ekki eyðileggja neitt fyrir neinum hér, en Barron Trump er ekki tímaferðalangur. Mér þykir miður að segja þetta og ég er leið yfir að ég hafi kramið mörg hjörtu í dag,“ sagði hún að sögn The Independent.

Hún sagði að þessi samsæriskenning sé skýrt merki um hversu mikla dreifingu og athygli ótrúlegar samsæriskenningar geta fengið á samfélagsmiðlum.

Hún sagði einnig að hún hafi þekkt Barron í mörg ár og sé því fullviss um að þessi samsæriskenning eigi ekki við rök að styðjast.

Mörgum þykir þessi kenning þó geta verið rétt og vísa í gamla skáldsögu frá lokum nítjándu aldar en í henni kemur maður að nafni Barron Trump við sögu og vilja sumir því tengja þessa fortíð við nútíðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND