
Erfðir geta átt hlut að máli í þessu sambandi en það eru líka lífsstílsþættir, sem þú þarft að íhuga, ef þú vilt auka líkurnar á að lifa lengur.
Amy Shah, læknir, hefur hitt ótal „ofur-eldri“ á starfsferli sínum, þar á meðal foreldra sína. Þetta ýtti undir vilja hennar til að deila vitneskju sinni með öðrum sem langar að lifa löngu og heilbrigðu lífi.
Express segir að Shah hafi bent á þrjá lífsstílsþætti sem allir geti einblínt á.
Varðveittu félagsleg tengsl – Að taka þátt í samtölum og samkomum þjálfar minnið, einbeitinguna, samskipti og getuna til að leysa vandamál og hjálpar heilanum að vera aktífur og sveigjanlegur.
Þess utan kemst fólk oft í kynni við nýjar hugmyndir, sjónarmið og vitneskju þegar það á í samskiptum við annað fólk. Þetta bætir hugræna getu.
Hreyfðu þig – hreyfing, sérstaklega þolþjálfun, getur stækkað hippocampus (sem er mikilvægt svæði fyrir minnið í heilanum) og dregur úr aldurstengdri veikingu heilans.
Þess utan bætir hreyfing blóðstreymið til heilans, styður við þróun nýrra heilafruma, styður andlega vellíðan og dregur úr aldurstengdri veikingu heilans.
Hreyfing bætir einnig blóðstreymið til heilans, ýtir undir þróun nýrra heilafruma, styður við andlega vellíðan og kemur skipulagi á hversdaginn.
Örvaðu heilann – Að þjálfa heilann hjálpar fólki að komast í flokk „ofur-eldri“ með því að bæta hugræna getu þess, eykur sveigjanleika heilans, heldur aftur af andlegri hnignun, ýtir undir samfelldan lærdóm og bætir andlega líðan.
Til að halda heilanum virkum, skaltu tryggja að þú takist á við ný og fjölbreytt verkefni til að láta reyna á heilann.