
Líklega mun dómur hennar, um hversu lengi karlar eiga að endast í kynlífinu, fá marga karla til að varpa öndinni léttar.
Miðað við það sem hún sagði þá er rétt að gleyma öllu, sem sést í kvikmyndum, þar sem karlarnir hamast klukkustundum saman á konunum.
Belle segir að hin fullkomna lengd samfara sé stutt miðað við það sem margir halda.
„10 til 15 mínútur. Ef þetta varir lengur en það, þá finnst mér ég næstum hafa verið eyðilögð,“ sagði hún.
Starfssystir hennar, Sophia Isabella, tók undir orð hennar og bætti við að langvarandi kynlíf sé „leiðinlegt“.
Þetta snýst sem sagt um gæðin frekar magnið, strákar!
En þið verðið að muna að þetta snýst ekki um að nú eigið þið alltaf að skella ykkur beint í lokaatriðið.
Belle lagði áherslu á að „allur pakkinn“ skipti máli, það er forleikurinn og upphitunin áður en það kemur að forleiknum.
Hún hefur einnig skoðun á hver hin „fullkomna“ typpastærð sé.
Í samtali við Daily Star sagði hún að draumastærðin hennar sé 16,5 cm þegar limurinn er í fullri reisn.
„Engin kona vill vera ófær um að ganga á hverjum degi, bara af því að þær stunduðu kynlíf. Við viljum heldur ekki hafa þá of svera. Þetta á ekki að vera vont, þeir eiga bara að passa fullkomlega,“ sagði hún.
Þrátt fyrir að poppkúltúrinn hafi fyllt höfuð okkar af fantasíum um risastór typpi og frammistöðu í rúminu, sem varir alla nóttina, þá styðja vísindin orð Belle. Rannsókn, vísindamanna við Pennsylvania State University, leiddi í ljós að kynlíf, sem varir í þrjár til sjö mínútur, er talið vera „eftirsóknarvert“ en þegar lengdin er 10 til 30 mínútur þá er það oft talið „of langt“.