
Kínverska öryggis- og leyniþjónustan telur að andstæðingar Kína standi á bak við Internetfyrirbrigðið „lying flat“ (að liggja flatur). Frá 2021 hefur sífellt fjölgað í hópi ungra Kínverja sem fylgja þessari lífsspeki.
Í upphafi var þetta svolítið sem fór á fleygiferð á Internetinu en er nú eiginlega orðin ákveðin lífsspeki sem gengur út á hoppa af hamstrahjólinu frekar en taka þátt í lýjandi baráttu um að ná frama í vinnunni.
Fréttaskýrendur telja margir hverjir að þetta sé ákveðið form mótmæla gegn grjótharðri kínverskri vinnumenningu þar sem 996-módelið er mjög útbreitt (vinna frá 9-21 sex daga í viku).
Atvinnuleysi meðal ungs fólks er hátt eða um 17% og það hefur blásið vindi í segl þeirra sem aðhyllast lífsspekina sem pirrar kommúnistastjórnina. Það hefur ekki dregið úr vinsældum lífsspekinnar að áhrifavaldar hafa verið duglegir að kynna hana fyrir fylgjendum sínum.
Kínversk ritskoðunaryfirvöld byrjuðu að reyna að grípa inn í þessa þróun á síðasta ári með því að fjarlægja efni, tengt lífsspekinni, af samfélagsmiðlum.
Nýlega sendi kínverska ríkisöryggisráðuneytið frá sér tilkynningu á WeChat um að allt væri þetta verk erlendra afla sem séu að innræta kínverskum ungmennum þessa slæmu hugmyndafræði. Wall Street Journal skýrir frá þessu.