
Þannig var fríið hjá þýskum manni þegar hann fór til grísku eyjunnar Kos sumarið 2004 með fjölskyldu sína. Hann fór á fætur klukkan sex á hverjum morgni til að finna sólbekki en það gekk ekki hratt fyrir sig og eyddi hann um 20 mínútum á dag í að finna lausa sólbekki. Oft endaði þetta með að hann fann ekki nógu marga bekki fyrir alla fjölskylduna og þurftu börnin hans því að liggja á jörðinni. BBC skýrir frá þessu.
Maðurinn var ekki sáttur við þetta og þegar heim var komið stefndi hann ferðaskrifstofunni fyrir dóm. Hún bauð honum 350 evrur, sem svara til um 50.000 króna, í endurgreiðslu af ferðinni sem hafði kostað manninn um eina milljón króna.
Maðurinn var ekki sáttur við þetta tilboð og því fór málið fyrir dóm og nýlega féll dómur í málinu. Dómari í Hannover dæmdi ferðaskrifstofuna til að endurgreiða manninum 900 evrur, sem svara til um 130.000 króna.
Í dómsorði segir að þrátt fyrir að hótelið og ferðaskrifstofan hafi ekki getað tryggt að allir viðskiptavinir hefðu aðgang að sólbekk á sama tíma, þá hafi þau borið ábyrgð á að tryggja að það væru „viðunandi“ margir sólbekkir miðað við gestafjölda.
Þessi upplifun Þjóðverjans er ekkert einsdæmi. Raunar hefur þetta fyrirbæri fengið nafnið „sunbed wars“ (sólbekkja stríðin) á samfélagsmiðlum.
Daily Mail skýrði frá því á síðasta ári að breskir ferðamenn á Tenerife sofi á sólbekkjum yfir nóttina til að tryggja sér þá daginn eftir.