
Flóðbylgjan, sem var 481 metra há, er næst hæsta flóðbylgjan sem mælst hefur. Það var þann 25. ágúst 2025 sem mikil skriða féll í sjó fram í Tracy Arm firðinum, sem er í suðausturhluta Alaska.
The Independent skýrir frá þessu og segir að flóðbylgjan hafi hreinsað gróður af bröttum hamraveggjum í firðinum.
Sem betur fer gerðist þetta klukkan 05.30 svo engin var í firðinum en hann er vinsæll viðkomustaður skemmtiferðaskipa.
Vísindamenn segja að skriðan hafi verið bein afleiðing af hnattrænni hlýnun. Jökullinn, sem huldi fjallið eitt sinn, hafi hörfað mikið vegna hækkandi hita og að lokum hafi klettarnir staðið eftir óstuddir og hafi síðan hrunið í sjó fram.
Tracy Arm fjörðurinn er um 40 km langur og um einn kílómetri á breidd. Fjöllin teygja sig upp í allt að 1.000 metra hæð.