fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Sölumaður dauðans talinn bera ábyrgð á rúmlega 100 andlátum – Mun játa sök í 14 málum í dag

Pressan
Föstudaginn 29. maí 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega sextugur kanadískur karlmaður er nú sakaður um að hafa valdið dauða rúmlega 100 manns, en hann mun hafa selt efnið natríumnítrít (e. sodium nitrite) sem er fyrst og fremst notað sem aukaefni í matvælaframleiðslu til að hindra bakteríuvöxt og gefa kjöti rauðan lit. Eins er efnið notað í efnaiðnaði, lyfjaframleiðslu og við málmvinnslu. Viðskiptavinir mannsins voru þó að nota efnið í öðrum og annarlegri tilgangi – til að svipta sig lífi.

_______________________________________________

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

_______________________________________________

Talið er að maðurinn, sem heitir Kenneth Law, hafi sent að minnsta kosti 1.200 sendingar af efni til rúmlega 40 landa, þar með taldar 160 sendingar innan Kanada. Lögreglan í Kanada, Bandaríkjunum, Bretlandi, Ítalíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi tók höndum saman í rannsókn málsins sem beindist að rúmlega 100 sjálfsvígum. Í Ontario er talið að þolendur mannsins séu 14 talsins og voru þeir á aldrinum 16–36 ára. Law var handtekinn á heimili sínu í Mississauge í maí árið 2023 og hefur verið í varðhaldi síðan.

Málið vakti gríðarlega athygli í Bretlandi eftir að lögregla greindi frá því að til rannsóknar væru andlát 88 einstaklinga sem keyptu vörur frá vefverslunum í Kanada sem tengjast Law. Réttarmeinalæknir í Nýja-Sjálandi hefur eins tengt fjögur sjálfsvíg við sendingar frá Law.

Dánaraðstoð hefur verið lögleg í Kanada frá árinu 2016 en til að eiga rétt á slíku þarf fólk að vera greint með alvarleg veikindi eða fötlun. Strangar reglur eru í gildi um dánaraðstoð og þess meðal annars krafist að hún eigi sér stað fyrir tilstilli lækna.

Reiknað er með að Law muni játa sök hvað varðar meinta þolendur í Ontario, þ.e. 14 einstaklinga sem sviptu sig lífi. Mun hann játa að hafa hvatt til og tekið þátt í sjálfsvígum þessara einstaklinga. Í skiptum fyrir játninguna mun ákæruvaldið falla frá ákæru um 14 morð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman