fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Sagður hafa banað stjúpsystur sinni með „barbarískum“ hætti – „Án nokkurra vísbendinga, án nokkurs fyrirvara“

Pressan
Föstudaginn 29. maí 2026 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unglingsstúlkan Anna Kepner ætti með réttu að vera að útskrifast núna úr gagnfræðaskóla (e. high school) í Flórída. Á meðan skólafélagar hennar fagna þessum mikla áfanga liggur Anna í gröfinni, en hún fannst látin um borð í skemmtiferðaskipi í nóvember. Kepner var á ferðalagi með fjölskyldu sinni þegar ræstitæknir fann hana látna undir rúmi í herbergi sem hún deildi með hálfbróður sínum og 16 ára stjúpbróður. Sá síðarnefndi, Timothy Hudson, er nú ákærður fyrir nauðgun og morð en saksóknari í málinu telur að unglingsdrengurinn hafi banað stjúpsystur sinni með einstaklega „barbarískum“ hætti.

„Þetta var barbarískur, vísvitandi og úthugsaður verknaður,“ segir ákæruvaldið í dómskjölum sem nýlega hafa verið gerð opinber. Þar kemur fram að Timothy hafi verið handtekinn eftir að erfðaefni hans fannst á líki Kepner. Hann er sakaður um að hafa beitt svokölluðu kyrkingartaki, en þá er handleggnum vafið um háls þolandans og þrýst á öndunarfærin. Að mati ákæruvaldsins er þetta sérstaklega hrottaleg leið til að myrða einhvern þar sem það tekur töluverðan tíma. Hudson hafi þurft að halda um háls stúlkunnar mínútunum saman.

„Á meðan hún barðist mínútum saman við að ná andanum hélt hann áfram að halda um háls hennar til að hún myndi kafna vegna súrefnisskorts. Mínútur liðu. Á þessum tíma hefði Timothy getað sleppt takinu. Hann hefði getað leyft þolanda sínum að anda. Þess í stað, mínútunum saman, hélt hann sínu striki svo hún myndi láta lífið og hélt áfram að kreista.“

Saksóknarinn, Alejandra Lopez, skóf ekki utan af því þegar hún kallaði þetta barbarískt, eða villimannslegt. Lopez barðist fyrir því að drengurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald en henni varð ekki að ósk sinni. Timothy hefur dvalið hjá móðurbróður sínum á meðan hann bíður eftir aðalmeðferð en fyrirkomulagið hefur gróflega misboðið almenningi þar sem drengurinn er sakaður um ófyrirgefanlega glæpi – nauðgun af ásetningi og morð. Verði hann sakfelldur fyrir bæði brotin á hann yfir höfði sér tvöfaldan lífstíðardóm.

„Án nokkurrar viðvörunar, án nokkurra vísbendinga, án nokkurs fyrirvara, nauðgaði þessi sakborningur stjúpsystur sinni og myrti hana á meðan þau voru í fríi.“

Eins kemur fram í skjölunum að á eftirlitsmyndavélum megi sjá Timothy ganga fram hjá herberginu eftir að lík Önnu fannst.

„Þegar hann gengur þarna fram hjá gerir hann enga tilraun til að sjá hvað er í gangi inni í herberginu, jafnvel þó að fjöldi manns sé enn þar inni og hurðin opin. Hann starir beint fram fyrir sig og gengur í burtu.“

Ákærukviðdómur, sem tók ákvörðun um ákæru, taldi ljóst að Timothy hefði tekið Kepner kyrkingartaki á meðan hann nauðgaði henni. Áður hefur komið fram að Timothy var skotinn í stjúpsystur sinni og hafði verið ágengur við hana. Hún hafði þó engan áhuga og fannst hrifning hans verulega óþægileg. Bæði frænka Kepner sem og fyrrverandi kærasti hennar hafa lýst því að Kepner hafi verið hrædd við stjúpbróður sinn. Engu að síður var henni gert að deila herbergi með honum í skemmtisiglingunni.

„Anna vildi í raun ekkert fara í þessa ferð þar sem þessi drengur var líka að fara,“ sagði frænka hennar sem telur að Timothy hafi bæði þráð stjúpsystur sína og hatað hana því hann kenndi henni um skilnað foreldra sinna.

„Honum fannst að hún væri manneskjan sem hefði rústað lífi hans“

Þrýstingurinn í kyrkingartakinu var svo mikill að hljóðhimnur stúlkunnar sprungu.

People greinir frá.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman